Golfsamband Íslands

Sjálfboðaliði ársins 2021 – GSÍ óskar eftir tilnefningum

Í stefnu Golfsambands Íslands er lögð áhersla á að vakta og skrá sjálfboðavinnu. Valið á sjálfboðaliða ársins er hluti af því að undirstrika hve mikilvægt sjálfboðaliðastarfið er fyrir hreyfinguna.

Golfsambandið óskar eftir tilnefningum um sjálfboðaliða ársins 2021. Vinsamlegast skilið inn tilnefningu úr ykkar golfklúbbi og sendið á netfangið soley@golf.is.

Skilafrestur er mánudagur 11. október 2021.

Exit mobile version