GSÍ fjölskyldan
LEK

LEK eru samtök kylfinga sem eru 50 ára og eldri. Tilgangur samtakanna er að efla samstarf og félagsskap eldri kylfinga, standa fyrir mótaröð eldri kylfinga og taka þátt í alþjóðastarfi kylfinga innan ESGA.

Spurt og svarað

Landssamtök eldri kylfinga LEK voru stofnuð 1985. Samtökin halda úti mótaröð, Öldungamótaröð, sem samanstendur af ýmsum keppnum og er að því leyti nokkuð óvenjulegt og flókið fyrirkomulag. Allir kylfingar sem hafa náð 50 ára aldri og eru í íslenskum golfklúbbi geta tekið þátt.

Í sumar verða sjö mót á mótaröðinni. Hvert mót er sjálfstætt mót þar sem keppt er bæði í höggleik og í punktakeppni. Í höggleik er keppt í flokki kvenna og karla ýmist eftir aldri eða teigum. Í punktakeppni er keppt óháð kyni og á hvaða teigum er spilað. Fimm efstu í hljóta verðlaun í punktakeppninni.

Mótaröðin sjálf eru öll mót á sumrinu. Keppnirnar eru þrenns konar. Þar er keppt í til stigameistara í kvenna- og karlaflokki, keppni í stigum til að komast í landslið og keppni í liðum en þar er keppt með punktum.

Liðakeppnin fer þannig fram að í upphafi sumars, tilkynna menn lið með sex einstaklingum óháð kyni. Í hverju móti telja þrír bestu í hverju liði. Það lið vinnur sem safnað hefur flestum punktum yfir sumarið.

LEK sendir út tvö landslið kvenna í flokkum 50+ og 65+ og fjögur landslið karla í flokkum 55+ með og án forgjafar og 65+ með og án forgjafar. Á dagskrá er að senda út landslið karla 75+ með þeirri kröfu að það keppi að jafnaði 12 karlar í þessum aldursflokki í hverju móti. Í ár munu verða útnefndir punktameistarar í karla- og kvennaflokki sem eru þau sem safnað hafa flestum punktum yfir sumarið. Stigameistarar eru þeir sem hafa fengið flest stig úr mótum sumarsins.

Ekki þarf að borga félagsgjald til að taka þátt í mótum hjá LEK. Mjög margir borga styrktargjald sem er sex þúsund krónur á ári. Gerð er krafa til þeirra sem eru að keppa til stiga, til landsliðs eða stigameistara, að þeir greiði gjaldið.

ÖLDUNGAMÓTARÖÐIN

Dags.Mán.Mótaskrá 2026Upplýsingar Klúbbur
 
25MaíOpna IcewearÞorlákshöfn
31MaíBlue Lagoon OpenGrindavík
 
7JúníOpna KaffitárSandgerði
14JúníOpna IcewearHella
 
26JúlíOpna PingMosfellsbær
 
4ÁgústOpna Domino’sKiðjaberg
30ÁgústOpna Örninn golfGrafarholt

Hafðu samband

Deildu:

Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ