Íslenska 50+ kvennalandsliðið hafnaði í 16. sæti eftir höggleikshringi Evrópumóts landsliða á BlackSeaRama vellinum í Búlgaríu.
Íslenska liðið var í 16. sæti eftir fyrsta hringinn. Á öðrum keppnisdegi lék liðið á 434 höggum, eða 74 höggum yfir pari. Fimm bestu skor liðsins töldu á hvorum hring, en alls eru sex kylfingar í liðinu.
Þórdís Geirsdóttir átti besta skor íslensku keppendanna á öðrum hring þegar hún lék á 80 höggum, átta höggum yfir pari. Hún lauk höggleiknum jafnframt efst íslensku kylfinganna, í 67. sæti á 161 höggi (+17).
Frakkland varð efst í undankeppninni á 746 höggum, 26 höggum yfir pari.
Framundan er holukeppnishluti mótsins, þar sem íslenska liðið leikur um 9.-16. sæti. Fyrsti leikurinn er gegn liði Ítalíu.
Hægt er að fylgjast með stöðunni hér






