GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

LEK – Landssamtök eldri kylfinga standa fyrir mótaröð í hermum fyrir eldri kylfinga í vetur.

Mótaröðin stendur yfir frá 29. nóvember 2026 til 6. mars 2027 og er aðgengileg í öllum Trackman hermum á Íslandi.


Keppt verður á fimm golfvöllum, bæði íslenskum og erlendum. Markmiðið er að hvetja eldri kylfinga til að stunda golf yfir vetrartímann og skapa skemmtilegan vettvang til keppni og samveru. 

Hvert mót er opið í tvær vikur og geta þátttakendur spilað hvenær sem er innan þess tímabils.

Vellir og dagsetningar

Mót Golfvöllur Tímabil
1 Reykjavík Korpa – Sjórinn/Áin 29. nóv. – 12. des. 2026
2 Yellowstone Club 10.–23. jan. 2027
3 Casa de Campo – Teeth of the Dog 24. jan. – 6. feb. 2027
4 Cabot Cliffs 7.–20. feb. 2027
5 Golfklúbburinn Keilir 21. feb. – 6. mars 2027

Þátttökuskilyrði
Mótaröðin er ætluð eldri kylfingum, 50 ára og eldri, sem eru félagar í golfklúbbi.
Keppt er í þremur flokkum:

  • Karlar 50–69 ára
  • Karlar 70 ára og eldri
  • Konur 50 ára og eldri

Þátttakendur þurfa að hafa Trackman-aðgang og gilda Trackman-forgjöf sem byggist á að minnsta kosti þremur gildum forgjafarhringjum í Trackman.

Keppnisfyrirkomulag
– Keppt er í 18 holu punktakeppni (Stableford) með Trackman-forgjöf.
– Spila má hvern völl 3 sinnum og gildir besta skor.
– Keppendur fá stig eftir sæti í hverju móti samkvæmt Order of Merit-stigakerfi Trackman.
– Fjögur bestu mótin af fimm telja til heildarúrslita í stigakeppninni.
– Keppendur spila á teigum miðað við þann flokk sem þeir eru í:

  • Karlar 50+: teigar í kringum 5600 m.
  • Karlar 70+: teigar í kringum 5200 m.
  • Konur: teigar í kringum 4700 m.

Í hverju móti er einnig keppt um næst holu (Nearest to the Pin).

Verðlaun
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sæti á stigakeppni mótaraðarinnar í öllum flokkum. Einnig eru veitt verðlaun fyrir 1. sæti í hverju móti og næst holu.

Hvernig tek ég þátt?

1. Skráðu þig í GolfBox
Skráning í mótaröðina fer fram í Golfbox: Skráning hér

2. Skráðu þig í mótið í Trackman
Þegar skráningu í GolfBox er lokið færðu staðfestingu á skjáinn og tengil sem þú þarft að smella á til að skrá þig í mótið í Trackman.

  • Smelltu á tengilinn fyrir mótið.
  • Skráðu þig inn á Trackman-aðganginn þinn.
  • Samþykktu boðið um þátttöku í mótinu.

3. Gakktu úr skugga um að þú sért með réttan aldur skráðan í Trackman og gilda Trackman-forgjöf 
Ef þú ert ekki þegar með Trackman-forgjöf þarftu að ljúka að minnsta kosti þremur gildum forgjafarhringjum í Trackman áður en þú getur spilað í mótinu.
Athugið að Trackman-forgjöf er ekki það sama og hefðbundin forgjöf í GolfBox.

4. Bókaðu tíma í golfhermi
Bókaðu tíma í Trackman-hermi.

5. Spila í mótaröðinni

  • Skráðu þig inn í Trackman.
  • Veldu LEK-mótaröðina undir Tournaments.
  • Byrjaðu hringinn.

Mikilvægt er að nota sama Trackman-aðgang í öllum mótunum.

Úrslit og staða í mótaröðinni
Hægt verður að fylgjast með úrslitum einstakra móta, aukakeppnum og stöðu í heildarstigakeppninni í Trackman á meðan mótaröðin stendur yfir.

LEK hvetur eldri kylfinga um allt land til að taka þátt og halda sér í golfformi yfir veturinn 🙂

Taktu þátt – höldum golfinu gangandi allan ársins hring!

Sendið póst á lek@golf.is ef spurningar vakna.

Hér að neðan má nálgast keppnisskilmála mótsins:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ