GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Andrea Bergsdóttir er í öðru sæti fyrir lokahring Islantilla Open, lokamóts LET Access mótaraðarinnar, sem fram fer á Spáni.

Andrea hefur leikið fyrstu tvo hringina á fjórum höggum undir pari. Hún lék fyrsta hringinn á 72 höggum en fylgdi honum eftir með frábærum öðrum hring upp á 68 högg. Andrea deilir öðru sætinu með þremur öðrum kylfingum, en Marina Domingo frá Spáni leiðir mótið á sex höggum undir pari.

Ragnhildur Kristinsdóttir verður einnig á meðal keppenda á lokahringnum. Hún er jöfn í 44. sæti á sex höggum yfir pari. Ragnhildur lék fyrsta hringinn á 76 höggum og þann næsta á 74 höggum.

Hulda Clara Gestsdóttir náði ekki í gegnum niðurskurðinn. Hún lék hringina tvo á 152 höggum, átta yfir pari, og lauk keppni jöfn í 60. sæti. Hulda lék fyrsta hringinn á 80 höggum en bætti sig verulega á þeim síðari sem hún lék á 72 höggum.

Lokamótið er síðasta tækifæri kylfinganna til að bæta stöðu sína á stigalista LET Access á þessu tímabili. Sjö efstu kylfingar listans í lok tímabilsins tryggja sér keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (LET) á næsta ári.

Hulda Clara hóf vikuna í níunda sæti stigalistans og átti möguleika á að komast upp í eitt af sjö efstu sætunum með góðum árangri. Eftir að hafa fallið úr leik er ljóst að hún nær ekki að bæta við sig stigum í lokamótinu.

Hér má sjá stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ