GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Á myndinni eru frá vinstri Dagbjartur Sigurbrandsson, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Veigar Heiðarsson, Hlynur Bergsson, Eva Kristinsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Elsa Maren Steinarsdóttir og Ólafur Björn Loftsson.
Auglýsing

Íslenskir háskóla- og atvinnukylfingar eru þessa dagana við æfingar í Orlando í Flórída í Bandaríkjunum. Hópurinn hélt af stað laugardaginn 21. nóvember í vikulanga æfingaferð sem er liður í afreksstarfi Golfsambands Íslands og undirbúningi kylfinganna fyrir komandi verkefni.

Allir landsliðskylfingar Íslands sem stunda háskólanám í Bandaríkjunum taka þátt í ferðinni, auk atvinnukylfinganna Dagbjarts Sigurbrandssonar og Hlyns Bergssonar. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, stýrir æfingum hópsins.

Æfingaferðin er sú fyrsta sinnar tegundar á vegum GSÍ og er hluti af aukinni áherslu á stuðning við íslenska afrekskylfinga sem stunda nám og keppni erlendis. Ferðin er skipulögð yfir þakkargjörðarvikuna í Bandaríkjunum þegar hlé er á hefðbundinni dagskrá bandarísku háskólanna.

Hópurinn æfir og leikur golf á nokkrum glæsilegum golfvöllum á Orlando svæðinu.

„Það hefur tíðkast á meðal fremstu golfþjóða Evrópu að halda æfingaferðir fyrir bestu háskólakylfingana sína yfir þakkargjörðarvikuna og við erum stolt og þakklát að fylgja í fyrsta sinn í fótspor þeirra og koma okkar frábæru kylfingum saman.

Það eru glæsilegar aðstæður hér í Orlando en hópurinn æfir og spilar meðal annars á Bay Hill, Golden Bear Club, Orange County National og Grand Cypress. Það er mjög góð stemning í hópnum og kylfingarnir drífa hvorn annan svo sannarlega áfram. Ég er sannfærður um að þessi ferð muni nýtast kylfingunum vel og styrkja dýrmæt tengsl þeirra á milli,“ segir Ólafur Björn Loftsson.

Nýr 23 manna landsliðshópur GSÍ var kynntur í byrjun nóvember og hóf hópurinn æfingar í lok október. Landsliðsstarfið hófst fyrr en undanfarin ár og er lögð aukin áhersla á fjölbreytt æfinga- og keppnisverkefni ásamt bættum stuðningi við kylfingana.

Framundan er þétt dagskrá hjá landsliðshópnum. Í byrjun janúar heldur hópurinn í æfingaferð á La Finca golfsvæðið á Spáni, þriðja árið í röð. Þá er fyrirhuguð keppnisferð til Ítalíu um páskana þar sem landsliðskylfingar munu taka þátt í tveimur alþjóðlegum mótum, auk þess sem æfingabúðir verða haldnar hér á landi.

Nánar um landsliðshóp GSÍ og verkefni vetrarins má lesa hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ