Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir komust báðar í gegnum niðurskurðinn á Iberdrola Calatayud Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni á Spáni. Hulda Clara er jöfn í 25. sæti fyrir lokahringinn og Andrea jöfn í 36. sæti. Ragnhildur Kristinsdóttir var einu höggi frá því að komast áfram.
Mótið fer fram á Gambito Golf Calatayud vellinum dagana 14.-16. október og er það fjórða síðasta á tímabilinu.
Hulda Clara hefur leikið báða hringina undir pari, þann fyrsta á 70 höggum og annan á 71 höggi. Hún er á þremur höggum undir pari í heildina. Andrea byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á 69 höggum, þremur undir pari, en hún lék annan hringinn á 74 höggum og er á einu höggi undir pari í heildina.
Ragnhildur lék fyrri hringinn á pari, 72 höggum, og þann síðari á 73 höggum.
Fyrir mótið var Hulda Clara í áttunda sæti stigalista LET Access, Ragnhildur í 17. sæti og Andrea í 18. sæti. Sjö efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour á næsta ári.
Hulda Clara er skammt frá síðasta sætinu sem veitir keppnisrétt á LET. Fyrir mótið munaði aðeins 32,5 stigum á henni og Theresu De Bochdanovits frá Þýskalandi í sjöunda sæti. De Bochdanovits er á fimm höggum undir pari eftir tvo hringi í Calatayud, tveimur höggum á undan Huldu Clöru.



