GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Árlegt golfmót Forskots, afrekssjóðs íslenskra kylfinga, fór fram á Hólmsvelli í Leiru hjá Golfklúbbi Suðurnesja fimmtudaginn 27. ágúst.

Fulltrúar fyrirtækjanna sem standa að Forskoti voru á meðal keppenda í mótinu ásamt nokkrum af fremstu kylfingum landsins. Alls voru 15 lið skráð til leiks.

Fimm afrekskylfingar léku með liðum fyrirtækjanna og settu skemmtilegan svip á mótið:

  • Guðrún Brá Björgvinsdóttir
  • Aron Emil Gunnarsson
  • Tómas Eiríksson Hjaltested
  • Ólafur Björn Loftsson
  • Haraldur Franklín Magnús

Fyrrverandi Íslandsmeistararnir Birgir Leifur Hafþórsson og Úlfar Jónsson voru einnig á meðal keppenda í mótinu og léku með liðum Olís.

Forskot er afrekssjóður sem hefur frá árinu 2012 stutt við bakið á íslenskum afrekskylfingum. Markmið sjóðsins er að gera styrkþegum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði, í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.

Að Forskoti standa Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið, Olís og Golfsamband Íslands. Olís bættist í hópinn á þessu ári.

Átta kylfingar fá úthlutað úr sjóðnum árið 2026: Andrea Bergsdóttir, Dagbjartur Sigurbrandsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Haraldur Franklín Magnús, Hlynur Bergsson, Ragnhildur Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Guðrún Brá og Haraldur Franklín voru því fulltrúar styrkþega ársins í golfmótinu. Nánar má lesa um Forskot og styrkþega ársins hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ