GSÍ fjölskyldan
Grid showcasing eight Icelandic golfers with their names: Andrea Bergsdóttir, Dagbjartur Sigurbra... wait: transcription}}
Kylfingarnir átta
Auglýsing

Forskot hefur frá árinu 2012 úthlutað styrkjum til afrekskylfinga og er úthlutunin í ár sú 15. í röðinni.
Að sjóðnum standa: Íslandsbanki, Icelandair, Vörður tryggingar, Bláa Lónið, Olís og Golfsamband Íslands.

Olís kemur nú inn í hóp þeirra fyrirtækja sem stutt hafa vel við bakið á íslenskum afrekskylfingum undanfarin ár.  

„Við hjá Olís leggjum mikið upp úr samfélagslegri ábyrgð og stuðningi við íþróttir og ungmenni. Því er stuðningur okkar til Forskots sem sjóður mikilvægur í þeirri áframhaldandi vegferð. Sjóðurinn er mikilvægt skref í því að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða og erum við hjá Olís stolt af þeirra þátttöku“, segir Ingunn Svala Leifsdóttir framkvæmdastjóri Olís.

Frá stofnun sjóðsins hefur markmiðið verið að gera styrkþegum auðveldara fyrir að æfa og keppa við bestu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi í golfíþróttinni.

Andrea Bergsdóttir, Dagbjartur Sigurbrandsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Haraldur Franklín Magnús, Hlynur Bergsson, Ragnhildur Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir fá úthlutað úr sjóðnum í ár.

Andrea Bergsdóttir er fædd árið 2000 og gerðist atvinnukylfingur árið 2024. Andrea vann stærsta sigur íslensks áhugakylfins í kvennaflokki frá upphafi árið 2024 þegar hún sigraði á háskólamóti í Mexíkó. Hún hafnaði í 12. sæti á LET Access atvinnumannamótaröðinni á sínu fyrsta keppnistímabili í fyrra og var í 3. sæti yfir nýliða ársins. Hún keppir LET Access mótaröðinni á þessu tímabili.

Dagbjartur Sigurbrandsson er fæddur árið 2002 og gerðist atvinnukylfingur árið 2025. Dagbjartur fagnaði sigri á Íslandsmótinu í golfi 2025 og keppir á Nordic Golf League atvinnumannamótaröðinni á þessu tímabili.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir er fædd árið 1994 og hún gerðist atvinnukylfingur árið 2018. Guðrún Brá er ríkjandi Íslandsmeistari í golfi en hún hefur fagnað titlinum fjórum sinnum. Guðrún Brá hefur að mestu leyti leikið á Evrópumótaröðinni á sínum atvinnumannaferli en hún tryggði sér keppnisrétt á mótaröðinni í ár með góðum árangri í úrtökumóti mótaraðarinnar í Marokkó í desember. 

Gunnlaugur Árni Sveinsson er fæddur árið 2005 og leikur fyrir LSU háskólann í Bandaríkjunum. Hann hefur sigrað á tveimur sterkum háskólamótum og er í 11. sæti yfir bestu áhugakylfinga heims. Enginn Íslendingur hefur komist jafn ofarlega á heimslista áhugakylfinga og Gunnlaugur. Gunnlaugur er jafnframt fyrsti Íslendingurinn til að vera valinn að keppa í ýmsum virtum liðakeppnum á borð við Arnold Palmer Cup.

Haraldur Franklín Magnús er fæddur árið 1991 og varð Íslandsmeistari í golfi árið 2012. Hann gerðist atvinnukylfingur árið 2017 og er í ár með fullan keppnisrétt á HotelPlanner Tour. Haraldur Franklín átti frábært ár á mótaröðinni í fyrra. Hans besti árangur var 2. sæti í Svíþjóð í júlí þar sem hann var hársbreidd frá því að leika lokahringinn á 59 höggum. 

Hlynur Bergsson er fæddur árið 1998 og gerðist atvinnukylfingur árið 2023. Hlynur hefur undanfarin tvö ár leikið á Nordic Golf League mótaröðinni og hefur fullan þátttökurétt á mótaröðinni í ár. Hans besti árangur í fyrra var í Svíþjóð í ágúst er hann sigraði á sínu fyrsta móti á mótaröðinni. 

Ragnhildur Kristinsdóttir er fædd árið 1997 og varð Íslandsmeistari í golfi árið 2023. Hún er á sínu fjórða ári sem atvinnukylfingur og er með takmarkaðan keppnisrétt á Evrópumótaröðinni á þessu tímabili. Ragnhildur var fyrst íslenskra kylfinga til að sigra á LET Access mótaröðinni í júlí í fyrra og hafnaði þar að auki í 2. sæti í tveimur mótum til viðbótar. Hún var afar nálægt því að tryggja sér fullan þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í ár en hún var einungis einu sæti frá því í gegnum stigalista LET Access mótaraðarinnar.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir er fædd árið 2006 og hóf nám við LSU háskólann í Bandaríkjunum síðastliðið haust. Perla var Íslandsmeistari í golfi 2022 og Evrópumeistari unglinga sama ár. Perla er fyrsti Íslendingurinn til að keppa fyrir hönd Evrópu í Junior Solheim bikarnum. 

Markmiðið með stofnun Forskots afrekssjóðs árið 2012 var að búa til reynslu og þekkingarbrunn sem skili sér til kylfinga framtíðarinnar og ungir kylfingar geti litið til í sínum framtíðaráætlunum.

Ríkar kröfur eru gerðar til þessara íþróttamanna um ráðstöfun styrkjanna. Ber þeim að leggja fram æfinga- og keppnisáætlanir auk fjárhagsáætlunar fyrir verkefni sín auk þess sem gerðir eru sérstakir samningar við hvern kylfing um að þeir virði reglur Íþrótta- og Ólympíuhreyfingarinnar.

Þeir kylfingar sem fá úthlutað úr Forskoti afrekssjóði eru sterkar fyrirmyndir. Það að eiga afreksmenn í íþróttum er stór og mikilvægur þáttur í því að fá börn og unglinga til að sinna íþróttum. Því er litið á sjóðinn sem mikilvægt skref til að efla íþróttir barna og unglinga og hvetja þau til dáða.

Einn fulltrúi frá þeim sem aðild eiga að Forskoti er í stjórn sjóðsins og auk þess hefur stjórn sér til ráðgjafar fagteymi sem gerir tillögur um úthlutanir úr sjóðnum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ