GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Unglingamótaröðin ferðast til Mosfellsbæjar í lok maí, en annað mót mótaraðarinnar fer þar fram dagana 30.-31. maí. Skráning í mótið er hafin, en henni lýkur mánudaginn 25. maí kl. 23:59.

Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokki 15-18 ára. Að 36 holum loknum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni.

Á laugardeginum verður ræst út af 1. og 10. teig frá kl. 07:30 og aftur frá kl. 13:00. Á sunnudeginum verður ræst út af 1. teig frá kl. 08:00. Rástímar og ráshópar verða birtir á þriðjudegi fyrir mót. Fyrsta daginn verður raðað handahófskennt í ráshópa en eftir það verður raðað út eftir skori.

Hámarksforgjöf í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna er 20. Hámarksfjöldi keppenda er 84, eða 42 í hvorum flokki. Ef ekki fyllist í annan flokkinn getur mótsstjórn fjölgað í hinum.

Veitt verða verðlaun fyrir 1.-3. sæti í báðum flokkum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í flokkunum 15-16 ára og 17-18 ára hjá bæði stúlkum og piltum.

Hægt er að nálgast skráningu, alla keppnisskilmála, reglugerðir og aðrar upplýsingar hér

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ