Gunnlaugur Árni Sveinsson, kylfingur GKG og LSU, hefur í dag leik í NCAA svæðismóti (Regional) í bandaríska háskólagolfinu. Mótið fer fram dagana 18.-20. maí á The Gallery vellinum í Arizona. Þar mætast fjórtán bestu háskólalið svæðisins og spila um fimm laus sæti í úrslitakeppni háskólagolfins.
LSU komst ekki í úrslitakeppnina á síðasta ári, þegar þeir enduðu í níunda sæti svæðismótsins. Gunnlaugur lék þó frábært golf í því móti og endaði fjórði í einstaklingskeppninni.

LSU liðið hefur átt flott tímabil og voru um stund metnir næststerkasta lið háskólagolfsins. Þeir koma inn í mótið sem áttunda sterkasta lið landsins, og það næststerkasta í móti vikunnar.
Gunnlaugur Árni hefur á nýjan leik verið lykilmaður í liði LSU á tímabilinu. Landsliðskylfingurinn sigraði m.a. á Fallen Oak Invitational mótinu og varð best áttundi á heimslista áhugakylfinga.
Gunnlaugur hefur leik kl. 14:33 að íslenskum tíma, og leikur með Ethan Fang úr Oklahoma State og Taishi Moto úr University of Arizona.



