GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Lokamót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 fara fram helgina 5.-6. september. Keppt verður á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og á Urriðavelli og Ljúflingi hjá Golfklúbbnum Oddi.

N1 Unglingamót á Korpúlfsstaðavelli

N1 Unglingamót 15-18 ára er sjöunda og síðasta mót ársins á Unglingamótaröð GSÍ. Mótið fer fram á Korpúlfsstaðavelli og verða leiknar 54 holur á tveimur dögum.

Keppt verður í höggleik án forgjafar á lykkjunum Sjórinn og Áin. Leiknar verða 36 holur á laugardeginum og verða allir keppendur ræstir samtímis af öllum teigum klukkan 8:00 og aftur klukkan 14:00. Sömu ráshópar halda sér í báðum umferðunum.

Að 36 holum loknum verður keppendum fækkað um 30 prósent. Þau 70 prósent kylfinga sem eru á besta skorinu í hvorum flokki komast áfram í lokaumferðina á sunnudeginum. Þá verður ræst út frá klukkan 8:00 og leikið eftir skori.

Skráningu í mótið lýkur miðvikudaginn 2. september klukkan 23:59.

Upplýsingar og skráning í N1 Unglingamótið

Golf 14 á Urriðavelli

Lokamót Golf 14 er 66°Norður mótið hjá Golfklúbbnum Oddi. Mótinu er skipt á milli Urriðavallar og Ljúflings eftir aldri og forgjöf kylfinga.

Á Urriðavelli verður leikinn höggleikur án forgjafar. Leiknar verða 36 holur, 18 holur hvorn keppnisdag, og verður ræst út af fyrsta teig frá klukkan 8:00 til 14:00.

Keppt verður í stúlkna- og drengjaflokkum 12 ára og yngri og 14 ára og yngri. Hámarksforgjöf til þátttöku er 36,0 og hámarksfjöldi keppenda er 96.

Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum flokkum og fer verðlaunaafhending fram að loknum leik hvers aldursflokks á sunnudeginum.

Upplýsingar og skráning í mótið á Urriðavelli

Golf 14 á Ljúflingi

Á Ljúflingi verður keppt í stúlkna- og drengjaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og 14 ára og yngri. Mótið er ætlað kylfingum með forgjöf 36,1 eða hærri.

Allir flokkar leika níu holur hvorn keppnisdag, samtals 18 holur. Leikið verður höggleiksafbrigði án forgjafar þar sem hámarksskor á hverri holu er tíu högg. Mótið gildir ekki til forgjafar.

Hámarksfjöldi keppenda er 108. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman, læra leikinn og öðlast reynslu af þátttöku í golfmótum.

Upplýsingar og skráning í mótið á Ljúflingi

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ