Landsliðsdagurinn fór fram hjá Nesklúbbnum þann 18. ágúst síðastliðinn og var hann liður í hæfileikamótun ungra og efnilegra kylfinga. Alls fengu 35 kylfingar á aldrinum 13-14 ára boð til þátttöku. Ólafur Björn Loftsson, Andri Þór Björnsson og Þorsteinn Hallgrímsson gáfu kylfingunum innsýn í starf landsliðsins, þær kröfur sem gerðar eru til afrekskylfinga og hvað þarf til að ná langt í íþróttinni. Kylfingarnir léku Nesvöllinn í góðu veðri við frábærar aðstæður og spreyttu sig á æfingum sem endurspegla áherslur landsliðsstarfsins.


„Það var mjög ánægjulegt að taka á móti afar áhugasömum og flottum hópi kylfinga og fá tækifærið að eyða deginum með þeim. Markmið okkar var að veita kylfingunum innblástur og hjálpa þeim að öðlast betri skilning á vegferðinni sem er fram undan. Dagurinn var einnig mikilvægur liður í að kynnast betur okkar framtíðarstjörnum og sjá hvar þau standa. Við vorum virkilega ánægðir með þann mikla áhuga sem kylfingarnir sýndu og hversu vel þeir tókust á við þær áskoranir sem við lögðum fyrir þá. Það er okkur ljóst að framtíðin er björt í íslensku golfi,“ segir Ólafur Björn, afreksstjóri GSÍ.
















