Auglýsing

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, endaði jafn í öðru sæti á Sand Valley Spring Series Final atvinnumótinu sem lauk í dag í Póllandi. Sigurður Arnar lék í þriggja manna bráðabana um sigurinn en Sebastian Petersen frá Svíþjóð tryggði sér sigurinn með fugli á 2. holu í bráðabananum.

Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu. 

Sigurður Arnar lék hringina þrjá á 204 höggum eða -7 (64-71-69). Bjarki Pétursson, GKG, endaði í 6. sæti á 206 höggum eða -5 (68-67-71). Aron Snær Júlíusson, GKG, varð 10. á 207 höggum eða -4 (62-75-70). Hlynur Bergsson, GKG, varð í 24. sæti á 210 höggum eða -1 (67-70-73).

Kristófer Orri Þórðarson og Ragnar Garðarsson úr GKG og Kristófer Karl Karlsson, GM, komust ekki í gegnum niðurskurðinn. einnig þátt.  

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.   

Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:

Aron Bergsson og Hákon Harðarson voru einnig á meðal keppenda. Aron hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandi en hann er búsettur í Svíþjóð og keppir fyrir Hills golfklúbbinn þar í landi. Hann er bróðir Andreu Bergsdóttur sem hefur verið að gera það gott í bandaríska háskólagolfinu að undanförnu. Hákon hefur keppt undir merkjum GR hér á landi hann er búsettur í Danmörku og leikur fyrir danska golfklúbbinn Royal Golf Klub.  

Eins og áður segir er þetta þriðja mótið í röð sem fram fer í Póllandi. Aron Snær Júlíusson náði bestum árangri íslensku kylfingina á fyrsta mótinu þar sem hann endaði í þriðja sæti. Og Bjarki Pétursson varð sjöundi á öðru mótinu í þessari keppnistörn.

Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.

Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ