Sigurður Arnar Garðarsson lék frábært golf á þriðja keppnisdegi annars stigs úrtökumóta fyrir DP World Tour á Spáni í gær. Hann lék á sjö höggum undir pari og lyfti sér upp í 15. sæti mótsins fyrir lokahringinn.
Sigurður Arnar er á sjö höggum undir pari eftir þrjá hringi. Sigurður fékk skolla á þriðju holu dagsins en svaraði með sjö fuglum á síðustu 14 holunum, þar af fimm fuglum á síðustu fimm holunum. Hringur hans var sá næstbesti allra kylfinga í gær og einnig sá næstbesti í mótinu hingað til.

Með árangrinum fór Sigurður úr 38. sæti upp í 15. sæti og er því kominn í hóp þeirra 20 kylfinga sem myndu tryggja sér sæti á lokaúrtökumótinu miðað við núverandi stöðu. Lokahringur mótsins fer fram í dag.
Dagbjartur Sigurbrandsson, Íslandsmeistari í golfi, lék einnig vel á laugardag á Isla Canela Links við Huelva. Hann kom í hús á 68 höggum, þremur undir pari, eftir að hafa fengið fimm fugla og tvo skolla. Dagbjartur er samtals á sjö höggum undir pari og jafn í 31. sæti. Hann er þremur höggum frá 20. sætinu og þarf því góðan lokahring til að komast áfram.
Ragnar Már Garðarsson, sem einnig leikur á Isla Canela Links, er samtals á þremur höggum yfir pari fyrir lokahringinn. Ragnar hóf mótið vel og lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari en hefur ekki náð að fylgja þeirri byrjun eftir.
Tuttugu efstu kylfingarnir á hvorum velli tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumótinu, sem fram fer á INFINITUM golfsvæðinu í Tarragona á Spáni dagana 6.-11. nóvember. Þar verður keppt um keppnisrétt á DP World Tour og HotelPlanner Tour fyrir tímabilið 2027.


