Auglýsing

Alls tóku sjö keppendur sem tengjast íslenskum golfklúbbum þátt á ECCO Tour Polish Masters mótinu sem lauk í dag á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi. Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu. 

Mótið er það fyrsta af þremur sem fram fer á þessum golfvelli á næstu dögum. 

Aron Snær Júlíusson náði flottum árangri og endaði í 3. sæti á 12 höggum undir pari vallar samtals. Hann lék hringina þrjá á 204 höggum (67-69-68). Aron Snær er ríkjandi Íslandsmeistari í holukeppni í karlaflokki og hann varð Íslandsmeistari í golfi árið 2021 á Jaðarsvelli á Akureyri.

Bjarki Pétursson endaði í 16. sæti á 208 höggum (-8) en hann lék á (69-66-73). Hlynur Bergsson endaði í 29. sæti en hann lék á 210 höggum (-6) (69-72-69). Sigurður Arnar Garðarsson lék á 211 höggum (+5) (69-68-74 og endaði hann jafn í 34. sæti.

Kristófer Orri Þórðarson, Ragnar Garðarsson og Kristófer Karl Karlsson komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Aron Snær, Sigurður Arnar, Bjarki, Hlynur,, Kristófer Orri og Ragnar eru allir úr GKG og Kristófer Karl er úr GM. 

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.   

Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:

Aron Bergsson og Hákon Harðarson voru einnig á meðal keppenda en þeir komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Aron hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandi en hann er búsettur í Svíþjóð og keppir fyrir Hills golfklúbbinn þar í landi. Hann er bróðir Andreu Bergsdóttur sem hefur verið að gera það gott í bandaríska háskólagolfinu að undanförnu. Hákon hefur keppt undir merkjum GR hér á landi hann er búsettur í Danmörku og leikur fyrir danska golfklúbbinn Royal Golf Klub.  

Eins og áður segir er þetta fyrsta mótið af alls þremur sem verða í Póllandi. Fyrsta mótið fer fram dagana 7.-9. apríl, næsta mót fer fram dagana 11.-13. apríl og þriðja mótið fer fram dagana 15.-17. apríl.  

Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.

Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ