GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson luku á sunnudag keppni á öðru stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour á Spáni. Allir þrír voru í baráttunni um sæti á lokaúrtökumótinu en enginn þeirra náði að tryggja sér áframhaldandi þátttökurétt.

Sigurður Arnar var í hvað bestri stöðu fyrir lokahringinn eftir frábæran þriðja hring á Fontanals Golf Club í Girona. Hann lék lokahringinn á þremur höggum yfir pari og lauk keppni á fjórum höggum undir pari, jafn í 33. sæti. Sigurður var fjórum höggum frá því að tryggja sér sæti á lokaúrtökumótinu.

Dagbjartur Sigurbrandsson lék á Isla Canela Links við Huelva og átti einnig möguleika á að komast áfram fyrir lokahringinn. Dagbjartur lauk keppni á átta höggum undir pari, jafn í 34. sæti, fjórum höggum frá þeim kylfingum sem tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt.

Ragnar Már Garðarsson lék einnig á Isla Canela Links. Hann byrjaði mótið vel og lék fyrsta hringinn á fjórum höggum undir pari en náði ekki að fylgja þeirri byrjun eftir á næstu hringjum. Ragnar lék lokahringinn á pari og lauk keppni á þremur höggum yfir pari, jafn í 71. sæti.

Lokaúrtökumótið fer fram á INFINITUM-golfsvæðinu í Tarragona á Spáni dagana 6.-11. nóvember. Þar verða leiknir sex hringir og munu 15 efstu kylfingarnir tryggja sér keppnisrétt á DP World Tour og fullan keppnisrétt á HotelPlanner Tour fyrir tímabilið 2027.

Fontanals Golf Club – úrslit

Isla Canela Links – úrslit

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ