Auglýsing

Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, sigraði á Íslandsmótinu í höggleik í flokki 13-14 ára stúlkna 2022. Úrslitin réðust í dag á Setbergsvelli í dag en leiknir voru þrír 18 holu hringir í þessum aldursflokki.

Pamela Ósk lék á 233 höggum eða 17 höggum yfir pari, (81-76-76). Hún var sjö höggum á undan næsta keppenda. Vala María Sturludótti, GL, varð önnur á 240 höggum (85-80-75) og Ninna Þórey Björnsdóttir, GR, varð þriðja á 244 höggum (84-79-81).

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ