Auglýsing

Hjalti Kristján Hjaltason, GM, sigraði á Íslandsmótinu í höggleik 2022 í flokki 12 ára og yngri í piltaflokki. Úrslitin réðust í dag á Setbergsvelli í dag en leiknir voru þrír 9 holu hringir í þessum aldursflokki.

Hjalti Kristján lék á 112 höggum eða 4 höggum yfir pari, (37-36-39). Hann var tveimur höggum á undan næsta keppenda. Björn Breki Halldórsson, GKG, varð annar á 114 höggum (38-39-37), og Halldór Jóhannsson, GK, varð þriðji á 117 höggum (41-39-37).

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit.

Smelltu hér fyrir myndasafn frá mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ