GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2026 dagana 17.-19. júlí. Mótið er fimmta mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit.

Í karlaflokki eru 76 kylfingar skráðir til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta kylfinga, alls 23, eða rúmlega 30% keppenda.

Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá.

  1. Logi Sigurðsson, Golfklúbbi Suðurnesja +5,5
  2. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur +5,2
  3. Hákon Örn Magnússon, Golfklúbbi Reykjavíkur +4,7
  4. Daníel Ísak Steinarsson, Golfklúbbnum Keili +4,6
  5. Axel Bóasson, Golfklúbbnum Keili +4,5
  6. Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss +4,5
  7. Aron Snær Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +4,5

Meðalforgjöf karlaflokksins er +0,7.

Í kvennaflokki mæta 17 kylfingar til leiks frá níu golfklúbbum. Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur, alls fjóra.

Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá.

  1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili +3,7
  2. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur +2,9
  3. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja +1,6
  4. Elsa Maren Steinarsdóttir, Golfklúbbnum Leyni +1,5
  5. Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Golfklúbbnum Keili 0,3
  6. Ásdís Valtýsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur 0,3
  7. Heiða Rakel Rafnsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar 0,6

Meðalforgjöf kvennaflokksins er 1.5. Áhugavert verður að fylgjast með ríkjandi Íslandsmeistara kvenna, Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, á mótinu. Hún lék sitt fyrsta mót á GSÍ tímabilinu í júní, þegar hún sigraði Íslandsmótið í holukeppni.

Bikarinn hannaður í Japan

Keppt er um Hval­eyr­ar­bik­ar­ana eins og nafn mótsins gefur til kynna. Verðlauna­grip­ur­inn á sér nokkra sögu og óvenjulega. Er hann einn af elstu bik­ur­un­um í safn­inu hjá golf­klúbbn­um Keili. Var bik­ar­inn gef­inn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eft­ir að klúbbur­inn var stofnaður. Var keppt um bik­ar­inn á opnu móti hjá Keili sem haldið var í nokk­ur ár.

Bik­ar­inn er veg­leg­ur og frem­ur óvenju­leg­ur í út­liti. Var hann hannaður og sér­smíðaður í listagalle­rí í Jap­an á sín­um tíma. Þegar stiga­mót­inu Hval­eyr­ar­bik­arn­um var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað ein­tak enda keppt í tveim­ur flokk­um í Hval­eyr­ar­bik­arn­um. Var bik­ar­inn send­ur til Kína með það fyr­ir aug­um að búa til eft­ir­lík­ingu en Kín­verj­arn­ir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólm­inn var komið.

Höfðu Keil­is­menn þá upp á listagalle­rí­inu í Jap­an og var þar smíðaður ann­ar bik­ar sem gef­inn var af Icewe­ar. Þá þurfti raun­ar einnig að gera lít­il­lega við bik­ar­inn sem hafði skemmst á heim­leiðinni frá Jap­an. Bik­ar­inn hef­ur því farið nokkr­ar ferðir á milli Íslands og Asíu.

Mikilvæg stig á stigalista GSÍ

Hvaleyrarbikarinn er fimmta mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ