Íslandsmót eldri kylfinga fer fram á Kiðjabergsvelli dagana 16.-18. júlí.
Keppt er í tveimur aldursflokkum hjá körlum og konum, 50 ára og eldri, og 65 ára og eldri.
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu mótsins:
Alls er 61 keppandi skráður, frá 14 golfklúbbum.
Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, alls 20. Næstflestir koma frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, eða 12.
Lægstu forgjafir mótsins eiga Jón Snorri Halldórsson og Jón Karlsson í karlaflokki með +0.1, og Þórdís Geirsdóttir í kvennaflokki með 1,0.
Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, María Málfríður Guðnadóttir og Hannes Eyvindsson eru ríkjandi meistarar mótsins, en Hannes er sá eini sem verður ekki á meðal keppenda í ár. Aðrir ríkjandi meistarar mæta á Kiðjaberg til að verja titilinn.




