Golf 14 og Unglingamótaröð GSÍ heimsækja Jaðarsvöll á Akureyri næstu dagana, þar sem ungir og efnilegir kylfingar leika við frábærar aðstæður. Um 140 kylfingar mæta til leiks í mótin tvö, og verður því mikið líf á svæðinu. Veðrið ætti að leika við kylfinga á Akureyri, en spáð er um 20 gráðum alla þrjá keppnisdagana.
Unglingamótaröðin
Unglingamótaröðin fer fram dagana 17.-19. júlí. Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokkum 15-18 ára pilta og stúlkna. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í flokki 17-18 ára og 15-16 ára.
82 kylfingar keppa í mótinu, 25 stúlkur og 57 drengir.
Hér má sjá rástíma og stöðu í Unglingamótaröðinni
Golf 14
Golf 14 mótið fer fram dagana 18.-19. júlí. Keppt verður í flokki 14 ára og yngri drengja og stúlkna og leikinn höggleikur án forgjafar. Til leiks mæta 57 kylfingar, 47 drengir og 10 stúlkur.




