Frá Grafarholtsvelli.
Auglýsing

Landsmótið í golfhermum hófst um miðjan janúar og hafa tvær undankeppni farið fram. Úrslitin ráðast þann 2. apríl í GKG og er ljóst hvaða kylfingar leika til úrslita.

Í úrslitunum þann 2. apríl verða leiknar 36 holur eða tveir 18 holu hringir. Keppendur taka ekki með sér árangur úr undankeppninni.

Þetta er í annað sinn sem Landsmót í golfhermum fer fram en Gunnlaugur Árni Sveinsson og Saga Traustadóttir, bæði úr GKG, sigruðu í fyrra þegar mótið fór fram í fyrsta sinn.

GKG er framkvæmdaraðili mótsins í samstarfi við GSÍ.

Í ár er leikið á Grafarholtsvelli en í fyrra var leikið á Leirdalsvelli.

Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar.

  1. sæti: 100.000 kr.
  2. sæti: 50.000 kr.
  3. sæti: 30.000 kr.

Keppendur náðu mjög góðu skori í undankeppninni og voru nálægt því að rjúfa 60 högga múrinn. Í tilkynningu frá GKG kemur fram að í úrslitakeppninni sé spáð vindi og jafnvel bleytu – og þurfa keppendur að æfa sig við þannig aðstæður. Hægt er að stilla Trackman golfhermana þannig að aðstæður séu líkar því sem notaðar verða í úrslitunum þann 2. apríl.  

Staðan í kvennaflokki – smelltu hér: 

Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, lék best allra í kvennaflokki eða á 67 höggum sem er 4 högg undir pari vallar. Saga Traustadóttir, GKG, sem hefur titil að verja á þessu móti lék á -2 í undankeppninni líkt og þrefaldi Íslandsmeistarinn og atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. 
Heiðrún Anna fær 25 þúsund kr. gjafabréf fyrir besta árangurinn í undankeppninni.

Staðan í karlaflokki- smelltu hér:

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék á 60 höggum í undankeppninni eða á 11 höggum undir pari Grafarholtsvallar. Fjórir leikmenn úr GKG eru í fjórum efstu sætunum. Aron Snær Júlíusson, GKG, er á -8 og Guðjón Frans Halldórsson, GKG, er á +5. Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, sem hefur titil að verja á þessu móti er í fjórða sæti eftir undankeppnina á 4 höggum undir pari. 
Sigurður Arnar fær 25 þúsund kr. gjafabréf fyrir árangurinn í undankeppninni. Feðgarnir Aron Skúli Ingason og Ingi Rúnar Gíslason, báðir úr GM, eru einnig með í baráttunni um Landsmótsmeistaratitilinn 2023.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022, lék á 75 höggum og var jöfn í 8. sæti en samkvæmt keppnisskilmálum hlýtur Elsa Maren Steinarsdóttir, GL,  það sæti vegna betri árangurs hennar á seinni níu holunum.

Landsmót í golfhermum – staðan eftir undankeppni nr. 2.

Kvennaflokkur:

1. Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS 67 högg (-4)
2.-3. Saga Traustadóttir, GKG 69 högg (-2)
2.-3. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK 69 högg (-4)
4.-6. Sara Kristinsdóttir, GM 72 högg (par)
4.-6. Hrafnhildur Guðjónsdóttir, GO 72 högg (par)
4.-6. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 72 högg (par)
7. Berglind Erla Baldursdóttir, GM 73 högg (+2)
8. Elsa Maren Steinarsdóttir, GL 75 högg (+4)

Karlaflokkur:

1. Sigurður Arnar Garðarsson,GKG 60 högg (-11)
2. Aron Snær Júlíusson, GKG 63 högg (-8)
3. Guðjón Frans Halldórsson, GKG 66 högg (-5)
4. Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG 67 högg (-4)
5.-8. Aron Skúli Ingason, GM 68 högg (-3)
5.-8. Ingi Rúnar Gíslason, GM 68 högg (-3)
5.-8. Sveinn K. Ögmundsson, GKG 68 högg (-3)
5.-8. Viktor Ingi Einarsson, GR 68 högg (-3)

Veitt verða verðlaun fyrir besta skor í undankeppnunum – 25.000 kr. gjafabréf.

Mótsstjórn: Úlfar Jónsson, Sigmundur Einar Másson, Brynjar Geirsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ