GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Hvaleyrarbikar Golfklúbbsins Keilis fer fram dagana 17.-19. júlí á Hvaleyrarvelli. Aron Snær Júlíusson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru í forystu fyrir lokahringinn, sem fer fram á morgun. Aron er með eins höggs forskot í þéttum karlaflokki en Guðrún Brá leiðir kvennaflokkinn með fimm höggum.

Aron nálgast fjórða sigurinn í röð

Aron Snær lék annan hringinn á 70 höggum, tveimur undir pari, og er samtals á fjórum höggum undir pari. Hann hefur leikið báða hringi mótsins á 70 höggum og leiðir með einu höggi.

Aron hefur sótt fleiri högg á völlinn en nokkur annar kylfingur. Hann hefur fengið örn og níu fugla á fyrstu 36 holunum. Hann hefur jafnframt fengið 20 pör, fimm skolla og einn tvöfaldan skolla.

Aron hefur unnið öll þrjú mót sumarsins sem hann hefur leikið í, og er nú átján holum frá því að bæta fjórða sigrinum við.

Böðvar Bragi Pálsson er einn í öðru sæti á þremur höggum undir pari eftir hringi upp á 71 og 70 högg. Böðvar hefur sýnt mikinn stöðugleika og aðeins fengið tvo skolla á hringjunum tveimur. Hann hefur fengið 29 pör og fimm fugla.

Jóhannes Guðmundsson, ríkjandi meistari Hvaleyrarbikarsins, er í þriðja sæti á einu höggi undir pari. Hann lék annan hringinn á pari.

Skúli Gunnar Ágústsson átti besta hring dagsins og jafnframt lægsta hring mótsins til þessa. Hann lék á 69 höggum, þremur undir pari, fór upp um 22 sæti og er nú jafn í áttunda sæti.

Golfer swinging on left; blue leaderboard on right with players and scores (Aron Snær -4, Böðvar Bragi -3, Jóhannes G. -1).
Staðan í karlaflokki

Guðrún Brá jók forskotið

Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiðir kvennaflokkinn á einu höggi yfir pari. Hún lék annan hringinn á pari, fékk tvo fugla, tvo skolla og er með fimm högga forskot fyrir lokahringinn.

Guðrún hefur leikið stöðugt golf á fyrstu 36 holunum. Hún hefur fengið fjóra fugla, 27 pör og fimm skolla.

Þetta er annað mót Guðrúnar á GSÍ mótaröðinni í sumar. Hún hóf tímabil sitt í júní og varð þá Íslandsmeistari í holukeppni. Hún stefnir nú á annan sigur í röð, en Guðrún vann Íslandsmótið í golfi einnig á Hvaleyrarvelli í fyrra.

Elsa Maren Steinarsdóttir lék annan hringinn á 74 höggum og færðist upp um tvö sæti. Hún er ein í öðru sæti á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er í þriðja sæti á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir í því fjórða á níu höggum yfir pari.

Profile photo of a female golfer on the left and a maroon leaderboard on the right showing players and scores (Gudrún Brá +1, Elsa Maren +6, Þóra Sigríður +8, Perla Sól +9, Heilða Rakel +11, Ásdís Valdís +14, Katrín Embla +14); logos along the bottom.
Staðan í kvennaflokki

Sjöunda holan sú gjöfulasta

Ný og skemmtileg upplýsingasíða mótsins hefur reynst áhorfendum vel. Þar má finna öll helstu skor, tölfræði og upplýsingar frá mótinu.

Keppendur hafa samtals fengið 325 fugla og sjö erni eftir fyrstu tvo hringina. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar hefur reynst gjöfulust og verið leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari.

Tólfta holan hefur verið erfiðust og verið leikin á 0,86 höggum yfir pari að meðaltali.

Lokahringur mótsins fer fram á morgun. Hægt er að fylgjast með stöðunni og ítarlegri tölfræði í beinni á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ