GSÍ fjölskyldan
Group of men and women posing on a golf course with large trophies and bouquets after a tournament, cloudy sky overhead.
Verðlaunahafar mótsins á Kiðjabergi í dag - Myndir tók Valur Jónatansson
Auglýsing

Íslandsmóti eldri kylfinga lauk á Kiðjabergsvelli í dag. Mótið fór fram dagana 16.-18. júlí og voru leiknar 54 holur í fjórum flokkum, 50 ára og eldri og 65 ára og eldri karla og kvenna.

Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðrún Garðars og Gauti Grétarsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlum eldri kylfinga 2026 eftir skemmtilegt og spennandi mót.

Hér má sjá úrslit mótsins í heild sinni

Group of seven people on a golf course holding bouquets and trophies after a competition award ceremony, with a cloudy sky in the background.
Íslandsmeistarar eldri kylfinga 2026

Þórdís Íslandsmeistari í flokki 50+ kvenna

Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð Íslandsmeistari í flokki 50 ára og eldri og varði því titil sinn. Hún lék hringina þrjá á 81, 86 og 82 höggum og lauk leik á 249 höggum, 36 höggum yfir pari.

Þórdís var með fimm högga forskot fyrir lokahringinn og hélt forystunni sinni þrátt fyrir góða spilamennsku Ragnheiðar Sigurðardóttur í dag. Ragnheiður átti besta hring dagsins í flokknum, en hún lék á 80 höggum og minnkaði forskotið niður í þrjú högg.

Helga Þorvaldsdóttir lék lokahringinn á 83 höggum og tryggði sér þriðja sætið á 259 höggum. Lilja Guðríður Karlsdóttir varð fjórða og Sigríður Kristinsdóttir fimmta.

Six people posing indoors with certificates and a bouquet, wood floor and a golf-themed poster in the background.
Verðlaunahafar 50+ kvenna
SætiKylfingurGolfklúbbur1. hringur2. hringur3. hringurSkor
1Þórdís GeirsdóttirGolfklúbburinn Keilir818682+36
2Ragnheiður SigurðardóttirGolfklúbburinn Keilir888480+39
3Helga ÞorvaldsdóttirGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar878983+46
4Lilja Guðríður KarlsdóttirGolfklúbburinn Keilir878791+52
5Sigríður KristinsdóttirGolfklúbbur Reykjavíkur958989+60

Miklar sviptingar á lokaholunum í flokki 50+ karla

Mikil spenna var í flokki 50 ára og eldri karla þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokaholunni. Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golfklúbbi Fjallabyggðar varð Íslandsmeistari á 228 höggum, 15 höggum yfir pari, og varði einnig titil sinn.

Sigurbjörn hóf lokahringinn tveimur höggum á undan Jóni Karlssyni en þremur höggum á eftir Jóni Snorra Halldórssyni. Allir þrír voru því í baráttunni um titilinn.

Jón Snorri var enn þremur höggum á undan Sigurbirni eftir 12 holur lokahringsins. Jón fékk hins vegar tvöfaldan skolla á 13. holu og skolla á þremur holum í röð þar á eftir. Sigurbjörn jafnaði við hann á 14. holu, komst höggi fram úr á þeirri 15. og bætti öðru höggi við forskotið á lokaholunni.

Á sama tíma lék Jón Karlsson frábært golf í dag og var kominn einu höggi á undan Sigurbirni þegar þrjár holur voru eftir. Báðir fengu þeir skolla á 16. holu en Jón fékk annan skolla á þeirri 17. og voru þeir því jafnir fyrir lokaholuna.

Sigurbjörn gerði sér lítið fyrir og fékk fugl á 18. holu á meðan Jón fékk skolla. Tveggja högga sveifla á lokaholunni og Sigurbjörn Íslandsmeistari á nýjan leik.

Jón Karlsson og Jón Snorri Halldórsson enduðu jafnir í öðru sæti á 230 höggum. Árni Páll Hansson varð fjórði á 232 höggum og Frans Páll Sigurðsson fimmti, aðeins höggi þar á eftir.

SætiKylfingurGolfklúbbur1. hringur2. hringur3. hringurSkor
1Sigurbjörn ÞorgeirssonGolfklúbbur Fjallabyggðar747975+15
T2Jón KarlssonGolfklúbbur Reykjavíkur817475+17
T2Jón Snorri HalldórssonGolfklúbbur Reykjavíkur747680+17
4Árni Páll HanssonGolfklúbburinn Esja797677+19
5Frans Páll SigurðssonGolfklúbburinn Setberg807875+20

Guðrún hafði betur eftir jafna baráttu í flokki 65+ kvenna

Guðrún Garðars úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð Íslandsmeistari í flokki 65 ára og eldri. Hún og Steinunn Sæmundsdóttir voru jafnar fyrir lokahringinn eftir að hafa báðar leikið fyrstu tvo hringina á 84 höggum.

Guðrún lék lokahringinn á 82 höggum og lauk mótinu á 250 höggum, 37 höggum yfir pari. Hún var einu höggi á undan Steinunni þegar þrjár holur voru eftir og bætti tveimur höggum við forskotið á lokaholunum. Steinunn lék lokahringinn á 85 höggum og varð önnur, þremur höggum á eftir Guðrúnu.

María Málfríður Guðnadóttir, ríkjandi meistari flokksins, átti einnig góðan lokahring upp á 82 högg og varð þriðja á 257 höggum. Ágústa Dúa Jónsdóttir varð fjórða og Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir fimmta.

Six adults pose indoors with a large trophy and envelopes, celebrating a prize win.
Verðlaunahafar 65+ kvenna
SætiKylfingurGolfklúbbur1. hringur2. hringur3. hringurSkor
1Guðrún GarðarsGolfklúbbur Reykjavíkur848482+37
2Steinunn SæmundsdóttirGolfklúbbur Reykjavíkur848485+40
3María Málfríður GuðnadóttirGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar908582+44
4Ágústa Dúa JónsdóttirNesklúbburinn809291+50
5Jóhanna Ríkey SigurðardóttirGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar909586+58

Öruggur sigur Gauta í flokki 65+ karla

Gauti Grétarsson úr Nesklúbbnum tryggði sér öruggan sigur í flokki 65 ára og eldri. Hann lék hringina á 78, 74 og 75 höggum og lauk mótinu á 227 höggum, 14 höggum yfir pari.

Gauti var með níu högga forskot fyrir lokahringinn og bætti höggum við það á lokadeginum. Hann vann að lokum með þrettán högga mun.

Kristján V. Kristjánsson úr Golfklúbbnum Keili varð annar á 240 höggum eftir tvo hringi í röð á 77 höggum. Brynjar Harðarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðji, Hlöðver Sigurgeir Guðnason fjórði og Kristinn Þórir Kristjánsson fimmti.

Group of five adults standing indoors, posing with a large trophy in front of a poster showing golfers; casual to semi-formal attire.
Verðlaunahafar 65+ karla
SætiKylfingurGolfklúbbur1. hringur2. hringur3. hringurSkor
1Gauti GrétarssonNesklúbburinn787475+14
2Kristján V. KristjánssonGolfklúbburinn Keilir867777+27
3Brynjar HarðarsonGolfklúbbur Reykjavíkur798286+34
4Hlöðver Sigurgeir GuðnasonGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar789585+45
5Kristinn Þórir KristjánssonGolfklúbburinn Keilir888489+48

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ