Golf 14 mótaröðin heimsótti Jaðarsvöll á Akureyri um helgina, þar sem ungir og efnilegir kylfingar léku við frábærar aðstæður. Tæplega 60 kylfingar mættu til leiks í mótið og var mikið líf á svæðinu. Veðrið lék við kylfinga á Akureyri, en hitinn var rétt um 20 gráður í dag.
Leikinn var 36 holu höggleikur án forgjafar í flokki 14 ára og yngri drengja og stúlkna.
Í stúlknaflokki stóð Hrafnhildur Sigurðardóttir, GKG, uppi sem sigurvegari, en hún lék hringina tvo á 80 og 79 höggum og lauk leik á sautján höggum yfir pari. Hrafnhildur leiddi með einu höggi fyrir lokaholuna en fékk þar frábært par og tryggði með því sigurinn.
Eiríka Malaika Stefánsdóttir, GM, varð önnur á tuttugu höggum yfir pari og Embla Sigrún Arnsteinsdóttir, GA, varð þriðja á þrjátíu og einu höggi yfir pari.




Úrslitin í drengjaflokknum réðust í bráðabana. Þar mættust klúbbfélagarnir Ásgeir Páll Baldursson og Emil Darri Birgisson, GM. Þeir léku hringina tvo báðir á sjö höggum yfir pari og héldu því aftur af stað á fyrstu holu. Á annarri holu bráðabanans hafði Ásgeir betur, og hann því sigurvegari mótsins.
Kristófer Áki Aðalsteinsson, GA, varð þriðji á fjórtán höggum yfir pari, en hann lék hringi sína á 76 og 80 höggum.








