GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Hvaleyrarbikar Golfklúbbsins Keilis hófst á Hvaleyrarvelli þann 17. júlí. Mótið er það fimmta á GSÍ mótaröðinni í sumar og er leikinn 54 holu höggleikur á þremur keppnisdögum.

Golfklúbburinn Keilir hefur sett í loftið skemmtilega upplýsingasíðu fyrir þá sem vilja fylgjast með mótinu. Þar er m.a. hægt að nálgast stöðutöflu mótsins, ítarlega tölfræði kylfinga, upplýsingar um mótið, veðrið og rástíma. Einnig er hægt að leita eftir leikmönnum, fylgjast með stöðu þeirra á vellinum og sjá hvar þeim er spáð í mótinu.

Hér er hægt að heimsækja síðuna

Map of a winding hiking trail with numbered checkpoints and time estimates along the route
Hér má sjá hvar hvert holl er staðsett á vellinum

Tölfræðin sýnir hversu mikið getur gerst á einum golfhring. Fjórir kylfingar voru t.d. jafnir í efsta sæti karlaflokksins eftir fyrsta keppnisdaginn, en leið þeirra á toppinn var ólík. Hægt er að fylgja hverjum þeirra eftir á línuriti og sjá hvernig þeir færðust upp og niður stöðutöfluna á hringnum.

Colored line chart showing popularity of Icelandic baby names over time, with a vertical reference line and a right-hand legend of names like Guðrún, Elsa, and other contributors.
Þróun skora í kvennaflokki

Alls höfðu keppendur fengið 182 fugla og sex erni þegar þessi frétt var skrifuð. Daníel Ísak Steinarsson, Aron Snær Júlíusson, Guðmundur Snær Elíasson og Svanberg Addi Stefánsson höfðu þá fengið flesta fugla, eða fimm hver.

Leaderboard widget showing today’s top scorers on the left (names and team labels) and birds caught on the right, with points in red.
Áhugaverð tölfræði

Sjöunda hola vallarins hafði reynst keppendum best og verið leikin að meðaltali á 0,32 höggum undir pari. Tólfta holan hafði hins vegar reynst erfiðust og verið leikin tæplega einu höggi yfir pari að meðaltali.

Einnig er hægt að sjá hvaða kylfingar eru að leika best hverju sinni, hverjir hafa bætt stöðu sína mest á milli hringja og skoða skordrefingu einstakra keppenda.

Tölurnar breytast jafnóðum og keppendur ljúka holum og því er tilvalið að hafa upplýsingasíðu Hvaleyrarbikarsins opna um helgina.

Golf leaderboard: list of players with current scores, par, and hole-by-hole results.
Stöðutaflan

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ