Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, náði sínum næst besta árangri á tímabiinu á Lacoste Ladies Open í Frakklandi.
Mótaröðin er sú sterkasta hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki í Evrópu.
Skorið á mótinu má nálgast hér.
Valdís Þóra lék hringina fjóra á +2 samtals (79-66-70-71). Eins og sjá má gekk ýmislegt á hjá Valdís Þóru á þessum fjórum keppnisdögum.
Hún vann sig sterkt til baka eftir erfiða byrjun á mótinu. Fyrir árangurinn í Frakklandi fékk Valdís Þóra um 600.000 kr. í verðlaunafé.
Sigurvegarinn, Nelly Korda, frá Bandaríkjunum lék á -15 samtals og fékk hún tæplega 7 milljónir kr. í verðlaunafé.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-09-22-at-7.45.30-PM-1024x266.png)
Mótið í Frakklandi er 12. mótið á tímabilinu hjá Valdísi Þóru. Hún var í 78. sæti stigalista LET Evrópumótaraðarinnar fyrir mótið en er nú í 73. sæti.
Hún lék síðast í Skotlandi í ágúst en besti árangur Valdísar Þóru á þessu tímabili er 5. sæti á móti sem fram fór á Nýja-Sjálandi í byrjun mars á þessu ári.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-09-19-at-10.14.49-AM-1024x398.png)
Það fer að líða að lokum keppnistímabilsins á LET Evrópumótaröðinni. Valdís Þóra á eftir að keppa á þremur mótum til viðbótar.
Næsta mót fer fram á Spáni 26.-29. september, næst síðasta mótið fer fram á Indlandi í byrjun október og lokamótið fer fram í lok nóvember á Spáni.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-09-19-at-10.18.45-AM-1024x181.png)