Auglýsing

GR-ingarnir Haraldur Franklín Magnús og Dagbjartur Sigurbrandsson kepptu báðir á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í þessari viku.

Dagbjartur, sem er áhugakylfingur, keppti á Englandi en atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín keppti í Austurríki.

Dagbjartur hóf leik þriðjudaginn 17. september en Haraldur Franklín hóf leik miðvikudaginn 18. september.

Alls taka 10 íslenskir keppendur þátt á 1. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina á þessu hausti og er það met.

Um 800 keppendur eru skráðir til leiks á 1. stig úrtökumótsins og komast um 20% þeirra áfram á 2. stigið.

Haraldur Franklín, skorið í Austurríki er uppfært hér:

Dagbjartur, skorið á Englandi er uppfært hér:

4. keppnisdagur:

Dagbjartur hefur lokið keppni en hann endaði í 37. sæti og er þátttöku hans á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina 2019 því lokið. Hann lék hringina fjóra á +4 samtals (75-69-68-75). Fyrsti og fjórði keppnisdagurinn gerði Dagbjarti erfitt um vik að komast í hóp þeirra sem fóru áfram.

Dagbjartur, sem er fæddur árið 2002, fór upp um 16. sæti á þriðja keppnisdegi eftir að hafa fært sig upp um 25 sæti á öðrum keppnisdegi. Hann er í 21.-26. sæti fyrir lokahringinn og er í góðri stöðu að komast á 2. stigið.

4. keppnisdagur:

Haraldur Franklín Magnús komst örugglega áfram á 2. stigið með því að enda í 4. sæti á úrtökumótinu í Austurríki. Haraldur Franklín lék lokahringinn á pari vallar eða 72 höggum en hann lagði grunninn á fyrstu þremur keppnisdögunum. Haraldur Franklín var í öðru sæti fyrir lokahringinn en hann endaði á -15 samtals (68-66-67-72).

Dagbjartur Sigurbrandsson.
Haraldur Franklín Magnús.

Rúnar Arnórsson, Andri Þór Björnsson og Bjarki Pétursson náðu tryggja sér sæti á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina fyrr í þessum mánuði.

Fyrsta stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í karlaflokki fer fram á nokkrum keppnisvöllum í Evrópu á næstu vikum. Alls eru þrjú stig á úrtökumótunum fyrir Evrópumótaröðina.

Alls kepptu sex íslenskir keppendur á Fleesensee í Þýskalandi og komust þrír þeirra áfram eins og áður segir. Rúnar, Andri Þór og Bjarki léku allir á -7 samtals sem skilaði þeim í sæti 12.-22. Alls komust 22 keppendur áfram af Fleesensee vellinum. Þetta er í fyrsta sinn sem Rúnar og Bjarki reyna fyrir sér á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina en í þriðja sinn hjá Andra Þór.

Eftirtaldir kylfingar léku á 1. stigi úrtökumótsins dagana 10.-13. september. Axel Bóasson, GK, Rúnar Arnórsson, GK (áhugakylfingur), Bjarki Pétursson, GKB (áhugakylfingur), Aron Snær Júlíusson, GKG (áhugakylfingur), Ragnar Már Garðarsson, GKG (áhugakylfingur) og Andri Þór Björnsson, GR léku allir á Fleesensee vellinum í Þýskalandi.
Á Arlandastad í Svíþjóð lék Aron Bergsson, GKG, en hann er búsettur í Svíþjóð.

Næstu mót á 1. stigi úrtökumótsins eru:

Sept: 17.-20.
Stoke, England: Dagbjartur Sigurbrandsson, GR (áhugakylfingur).
Ebreichsdorf, Austurríki: Haraldur Franklín Magnús, GR.

Okt: 1.-4.
Frilford Heath, England
Bogogno, Ítalía

Okt: 9.-12.
Golf d’Hardelot, Frakkland: Ólafur Björn Loftsson, GKG.
Born Successo, Portúgal.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ