Valdís Þóra. Mynd/ Tristan Jones
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, hefur leik í dag á 1. stigi úrtökumótsins fyrir LPGA mótaröðina í Bandaríkjunum.

Alls eru 360 keppendur skráðir til leiks á 1. stig úrtökumótsins sem fram fer á þremur keppnisvöllum á Rancho Mirage golfsvæðinu í Kaliforníu.

Skor keppenda er uppfært hér:

Leiknar eru 72 holur á fjórum keppnisdögum og er niðurskurður eftir þriðja hringinn. Til þess að komast inn á 2. stig úrtökumótsins í október þarf Valdís Þóra að vera á meðal 60 efstu á 1. stiginu.

2. stig úrtökumótsins fyrir LPGA mótaröðina fer fram 12.-17. október á Plantation golfvallasvæðinu í Flórída. Þar verða leiknir fjórir keppnishringir og komast 15-25 efstu áfram inn á lokaúrtökmótið.

Lokaúrtökumót LPGA mótaraðarinnar, Q-Series, fer síðan fram á tímabilinu 21. okt-2. nóvember á Pinehurst golfvallasvæðinu í Norður-Karólínu. Þar er keppt um 45 efstu sætin sem tryggja keppnisrétt á LPGA mótaröðinni keppnistímabilið 2019.

Þar verða leiknir 8 keppnishringir á tveimur vikum. Þeir kylfingar sem lenda í 20 efstu sætunum fá 100% keppnisrétt á LPGA en þeir sem enda í sætum 21-45 fá takmarkaðan keppnisrétt.



Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ