GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson tryggðu sér sæti á öðru stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour með frammistöðu sinni á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi.

Nítján efstu kylfingarnir komust áfram. Til að ná þeim árangri þurfti að minnsta kosti að leika á fjórum höggum undir pari, og voru íslensku kylfingarnir þrír á enn lægra skori.

Dagbjartur náði bestum árangri Íslendinganna og endaði jafn í sjötta sæti á níu höggum undir pari. Hann lék hringina fjóra á 71, 69, 70 og 69 höggum og endaði sex höggum á eftir sigurvegara mótsins.

Sigurður Arnar lék frábært golf á lokahringnum og kom inn á 68 höggum, fjórum undir pari. Hann lyfti sér upp í 11. sætið og lauk mótinu á sex höggum undir pari.

Ragnar endaði jafn í 14. sæti á fimm höggum undir pari. Hann lék best á öðrum keppnisdegi þegar hann kom inn á 67 höggum og endaði mótið með .

Úrslit íslensku kylfinganna:

  • T6. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69-70-69 (-9)
  • T11. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70-73-68 (-6)
  • T14. Ragnar Garðarsson, 73-67-73-70 (-5)
  • 29. Aron Snær Júlíusson, 69-71-75-72 (-1)
  • T36. Logi Sigurðsson, 74-72-74-69 (+1)
  • T40. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74-71-70 (+2)
  • T54. Hlynur Bergsson, 76-72-73-73 (+6)
  • T58. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74-76-74 (+8)

Aron var næstur því að komast áfram en hann endaði í 29. sæti á einu höggi undir pari.

Finninn Miikka Mäkinen sigraði mótið á 15 höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og vann með þriggja högga mun.

Annað stig úrtökumótanna fer fram dagana 29. október til 1. nóvember á fjórum völlum á Spáni. Þar leika Dagbjartur, Sigurður Arnar og Ragnar um sæti á lokastiginu, sem fer fram á INFINITUM Golf í Tarragona dagana 6.-11. nóvember.

Á lokastiginu verða leiknir sex hringir og fá 15 efstu kylfingarnir keppnisrétt á DP World Tour fyrir tímabilið 2027.

Lokastaða mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ