Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir voru á meðal keppenda í Hauts de France-Pas de Calais Golf Open mótinu á LET Access mótaröðinni sem fram fór í Frakklandi dagana 10.-12. september.
Hulda Clara lék hringina þrjá á pari og endaði jöfn í 21. sæti. Hún lék fyrstu tvo hringina á 71 höggi, einu höggi undir pari, og lokahringinn á 74 höggum.
Ragnhildur varð jöfn í 24. sæti á einu höggi yfir pari. Hún lék hringi sína á 71, 73 og 73 höggum.
Andrea lék fyrstu tvo hringina á 77 og 79 höggum og komst ekki í gegnum niðurskurð mótsins.
Hulda Clara er í fimmta sæti stigalista mótaraðarinnar með 933 stig. Efstu sjö kylfingarnir í lok tímabilsins vinna sér inn keppnisrétt á LET mótaröðinni árið 2027.
Hún hefur leikið í 12 mótum á tímabilinu og unnið eitt þeirra. Hulda hefur einnig fjórum sinnum verið á meðal tíu efstu, þar á meðal í fimmta sæti á Ladies Slovak Golf Open, áttunda sæti á Madaef Golfs Ladies Open og níunda sæti á Swedish Strokeplay.
Ragnhildur er í 14. sæti stigalistans með 713,65 stig eftir níu mót. Hún hefur þrisvar endað á meðal fimm efstu á tímabilinu. Besti árangur sumarsins er annað sætið á Allegria Ladies Open.
Andrea er í 23. sæti með 526,61 stig eftir 12 mót. Hún hefur tvisvar endað á meðal tíu efstu. Þá varð hún jöfn í 11. sæti á Arkea Montauban Ladies Open og jöfn í 12. sæti á Women’s English Open.
Sex mót eru eftir á tímabili LET Access. Næst verður leikið á Lavaux Ladies Open í Sviss dagana 16.-18. september. Lokamótið fer fram á Islantilla á Spáni dagana 18.-20. nóvember.




