GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Bandaríska háskólatímabilið er hafið, en margir íslenskir kylfingar leika þar samhliða skóla. Eva Kristinsdóttir, Elsa Maren Steinarsdóttir og Veigar Heiðarsson eru öll á meðal keppenda í sterkum mótum þessa dagana.

Eva Kristinsdóttir fór vel af stað á Badger Invitational mótinu, sem fram fer á University Ridge vellinum í Madison í Wisconsin dagana 13.-15. september.

Eva lék fyrsta hringinn á 69 höggum, eða þremur höggum undir pari, og var jöfn í öðru sæti að honum loknum. Hún fékk fimm fugla á hringnum.

Annan hringinn lék hún á 76 höggum og er jöfn í áttunda sæti fyrir lokahringinn. Leiknar voru 27 holur vegna veðurs í gær og lék Eva fyrri níu holur þriðja hringsins á pari.

Iowa háskólinn sem Eva leikur með er í fjórða sæti fyrir síðustu níu holurnar á tíu höggum yfir pari. Þetta er annað mót Evu með Iowa eftir að hún gekk til liðs við skólann fyrir yfirstandandi tímabil.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Veigar Heiðarsson hóf tímabilið með East Tennessee State University á Inverness Intercollegiate mótinu í Toledo í Ohio. Mótið er leikið á hinum sögufræga Inverness Club og er keppendahópurinn skipaður kylfingum frá mörgum sterkustu háskólaliðum Bandaríkjanna.

Veigar lék fyrsta hringinn á 73 höggum, tveimur höggum yfir pari, og var jafn í átjánda sæti að honum loknum. Hann lék annan hringinn á 76 höggum og er jafn í 39. sæti mótsins.

LSU er einnig á meðal þátttökuliða í mótinu. Gunnlaugur Árni Sveinsson hefur verið að jafna sig af meiðslum og gaf því ekki kost á sér í lið LSU að þessu sinni.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Elsa Maren Steinarsdóttir hóf leik með Western Carolina University á Elon Women’s Invitational í gær. Mótið fer fram á Alamance Country Club í Burlington í Norður Karólínu dagana 14.-15. september og er fyrsta mót Western Carolina á keppnistímabilinu.

Elsa leiðir mótið með tveimur höggum þegar átján holur eru eftir. Hún lék fyrri hring gærdagsins á 70 höggum, einu höggi undir pari, og seinni hringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Frábær byrjun á tímabilinu hjá Elsu.

Hér má fylgjast með skori mótsins

Perla Sól Sigurbrandsdóttir hefur skipt um skóla og gengið til liðs við University of Florida eftir að hafa verið hjá LSU á síðasta tímabili. Florida Gators lauk síðasta tímabili í fjórða sæti á styrkleikalista háskólaliða og er því eitt af sterkustu kvennaliðum bandaríska háskólagolfsins.

Florida hóf tímabilið með sannfærandi sigri á Cougar Classic mótinu. Liðið vann mótið með tíu högga mun og Jessica Guiser tryggði sér jafnframt sigur í einstaklingskeppninni á 16 höggum undir pari. Perla Sól var ekki í keppnisliði Florida í þessu fyrsta móti tímabilsins.

Louisiana Lafayette hefur einnig hafið tímabil sitt. Skúli Gunnar Ágústsson var ekki valinn í fimm manna keppnislið skólans fyrir fyrsta mótið en þetta er hans fyrsta tímabil í Bandaríkjunum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ