GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Golfsamband Íslands og KPMG standa fyrir málstofu miðvikudaginn 23. september þar sem kynntar verða niðurstöður nýlegrar rannsóknar á samfélagslegu virði golfíþróttarinnar (e. Social Return on Investment – SROI) og varpar ljósi á virði golfsins fyrir líðan, heilsu og samfélag Íslendinga.

Á málstofunni verður jafnframt fjallað um golf sem vettvang lýðheilsu og virkrar öldrunar, samfélagslegar áskoranir og það hlutverk sem golfhreyfingin getur gegnt til framtíðar.

Með erindi á dagskrá verða Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Helga Garðarsdóttir og Emil Þór Ragnarsson, sérfræðingar hjá KPMG, og Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir lýðheilsufræðingur. Að erindum loknum verða umræður í sal.

Málstofan fer fram á 8. hæð í húsnæði KPMG að Borgartúni 27 í Reykjavík, miðvikudaginn 23. september kl. 15:00-17:00.

Þátttaka er ókeypis og hægt er að skrá sig í hlekk hér að neðan.

Skráning á málstofuna fer fram hér

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ