Auður Bergrún Snorradóttir og Veigar Heiðarsson. Mynd/GSG
Auglýsing

Fyrsta mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ 2024 fór fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 25.-26. maí.

Mótaröðin fyrir kylfinga á aldrinum 15-18 ára og hófu 71 leikmenn keppni, 42 piltar og 29 stúlkur.  

Aðstæður voru krefjandi og var fyrsta umferð mótsins var felld niður vegna veðurs – en leiknar voru alls 36 holur á tveimur keppnisdögum. 

Úrslit í 15-18 ára flokki stúlkna:

1. Auður Bergrún Snorradóttir, GM 154 högg (+10) (84-70)
2. Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM 156 högg (+12) (80-76)
3.-4. Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG 158 högg (+14) (82-76)
3.-4. Eva Kristinsdóttir, GM 158 högg (+14) (80-78)

Úrslit í 15-18 ára flokki pilta: 

1. Veigar Heiðarsson, GA 140 högg (-4) (71-69)
2. Guðjón Frans Halldórsson, GKG 141 högg (-3) (73-68)
3. Arnar Daði Svavarsson, GKG 146 högg (+2) (75-71)

Frá vinstri: Eva Fanney, Eva, Pamela Ósk, Auður Bergrún, Veigar, Guðjón Frans og Arnar Daði. Mynd/GSG

Keppendur mótsins komu frá alls 12 klúbbum. Flestir komu frá GKG eða 18 alls, GM var 15, GK 9 alls og GR alls 8.  

      Stúlkur Piltar Samtals
1 GKG Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 7 11 18
2 GM Golfklúbbur Mosfellsbæjar 8 7 15
3 GK Golfklúbburinn Keilir 2 7 9
4 GR Golfklúbbur Reykjavíkur 5 3 8
5 GA Golfklúbbur Akureyrar 3 4 7
6 NK Nesklúbburinn 0 4 4
7 GS Golfklúbbur Suðurnesja 1 2 3
8 GL Golfklúbburinn Leynir 0 3 3
9 GOS Golfklúbbur Selfoss 0 1 1
10 GSS Golfklúbbur Skagafjarðar 1 0 1
11 GHD Golfklúbburinn Hamar Dalvík 0 1 1
12 GSE Golfklúbbur Setbergs 1 0 1

Keppt verður í einum aldursflokki á Unglingamótaröðinni á þessu tímabili og fleiri mót eru í boði en áður.

Einnig er keppt um Stigameistaratitla og Íslandsmeistaratitla í höggleik og holukeppni í aldursflokkunum 15-16 ára og 17-18 ára.

Eitt af markmiðum Unglingamótaraðarinnar er að gefa bestu kylfingum landsins 18 ára og yngri fleiri tækifæri á stigasöfnun á heimslista áhugakylfinga.

Fyrsta mót tímabilsins er í lok maí en mótin eru öll 54 holur og verður niðurskurður eftir tvo hringi í hverju höggleiksmóti. Með því að fækka aldursflokkum gefast jafnframt fleiri tækifæri fyrir þátttöku forgjafarhærri kylfinga á Unglingamótaröðinni. 

Keppt er í stúlkna- og piltaflokki og er hámarksforgjöf í báðum flokkum 20.0. 

25.-26. maí Unglingamótaröðin GSG Sandgerði
6.-8. júní Unglingamótaröðin GKG Kópavogur/Garðabær
30.-31. júlí  Unglingamótaröðin GK Hafnarfjörður 
16.-18. ágúst Íslandsmótið í höggleik  GM Mosfellsbær
24.-26. ágúst Íslandsmótið í holukeppni GSG Sandgerði
31. ágúst-1.sept. Unglingamótaröðin Ekki ákveðið Ekki ákveðið
7.-8. sept. Unglingamótaröðin GR Reykjavík

Ef smellt er á myndina þá opnast Hlaðvarpsþáttur þar sem að Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ fer yfir helstu áherslur og breytingar á Unglingamótaröð GSÍ 2024.

Þátturinn er einnig í heild sinni hér fyrir neðan.

e

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ