Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GKG, á Íslandsmótinu í golfi 2023. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Axel Bóasson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús tóku allir þátt á Danish Golf Challenge mótinu fram fór í Óðinsvéum í Danmörku. Keppt var á
Odense Eventyr golfvellinum dagana 23.-26. maí 2024.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Guðmundur Ágúst endaði í öðru sæti á 16 höggum undir pari vallar en hann var þremur höggum á eftir Andreas Halvorsen frá Noregi sem lék á 19 höggum undir pari samtals. Guðmundur Ágúst fór upp um 147 sæti á stigalist mótaraðarinnar og er hann í sæti nr. 40 eftir þetta mót. Í lok keppnistímabilsins komast 45 efstu á stigalistanum á lokamótið sem fram fer á Mallorca á Spáni.

Haraldur Franklín endaði í 13. sæti á 11 höggum undir pari samtals. Hann fer upp um 14 sæti á stigalistanum en hann er í sæti nr. 47.

Axel Bóasson endaði í 37. sæti á 7 höggum undir pari vallar. Hann er í sæti nr. 182 á stigalistanum eftir þetta mót.

Smelltu hér fyrir úrslit og lokastöðuna:

Smelltu hér fyrir úrslit og lokastöðuna:

Haraldur Franklín hefur tekið þátt á sex mótum á tímabilinu en hans besti árangur á árinu er 9. sæti á móti sem fram fór í Abú Dabí í lok apríl. Hann er í 57. sæti stigalistans á Challenge Tour – Nánar hér.

Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu fjórða móti á tímabilinu á þessari mótaröð. Sjá nánar hér með árangur Guðmundar, og hér með árangur Axels.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Danmörku það tíunda á þessu tímabili.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ