Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson.
Auglýsing

Axel Bóasson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús eru allir á meðal keppenda á Danish Golf Challenge sem fram fer í Óðinsvéum í Danmörku. Keppt er á
Odense Eventyr golfvellinum dagana 23.-26. maí 2024.

Íslensku kylfingarnir komust allir í gegnum niðurskurðinn og eru Guðmundur Ágúst og Haraldur Franklín á meðal þeirra efstu þegar keppni er hálfnuð.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Guðmundur Ágúst var í öðru sæti þegar keppni var hálfnuð á -11 samtals, Haraldur Franklín var á -7 í 7. sæti og Axel var á -2 samtals í 52. sæti.

Haraldur Franklín hefur tekið þátt á sex mótum á tímabilinu en hans besti árangur á árinu er 9. sæti á móti sem fram fór í Abú Dabí í lok apríl. Hann er í 57. sæti stigalistans á Challenge Tour – Nánar hér.

Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu fjórða móti á tímabilinu á þessari mótaröð. Sjá nánar hér með árangur Guðmundar, og hér með árangur Axels.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Danmörku það tíunda á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ