Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, er stigameistari 2022 á unglingamótaröð GSÍ flokki 15-16 ára. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, varð önnur og Auður Bergrún Snorradóttir, GM, varð þriðja.
Perla Sól tók þátt á fjórum mótum af alls fimm og sigraði hún í öll fjögur skiptin. Hún varð Íslandsmeistari í höggleik og er þetta fimmta árið í röð sem Perla Sól sigrar á Íslandsmótinu í höggleik í sínum aldursflokki.
Fjóla Margrét sigraði á einu móti á tímabilinu, Íslandsmótinu í holukeppni. Hún varð tvívegis í þriðja sæti og einu sinni í því fjórða. Hún tók þátt á fjórum mótum af alls fimm.
Auður Bergrún tók þátt á öllum fimm mótum tímabilsins. Hún lék til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni gegn Fjólu Margréti. Auður Bergrún varð tvívegis í öðru sæti á tímabilinu og tvívegis í því fimmta.
Smelltu hér fyrir stigalistann í heild sinni:
![Screen-Shot-2022-09-05-at-10.29.05-AM - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2022/09/Screen-Shot-2022-09-05-at-10.29.05-AM-1024x719.png)