GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson og Michelsen 1909 hafa undirritað langtímasamstarf sem byggir á sameiginlegum gildum; metnaði, fagmennsku, vandvirkni og virðingu fyrir þeim stóru áföngum sem marka vegferð afreksfólks.

Samstarfið er jafnframt nátengt einkunnarorðum Michelsen 1909, „Fyrir stóra áfangann í lífinu“, en markmið þess er að fagna og varðveita mikilvægustu augnablik á ferli Gunnlaugs með táknrænum gripum sem segja sögu vegferðar hans.

Við undirritun samstarfsins afhenti Michelsen 1909 Gunnlaugi Tudor Black Bay One úr til að minnast þess merka áfanga að hafa tryggt sér þátttökurétt á U.S. Open 2026. Úrið er áletrað til minningar um þann áfanga og markar jafnframt upphaf sameiginlegrar vegferðar þeirra.

„Það sem tengir okkur helst saman er metnaðurinn, drifkrafturinn og aginn sem þarf til að ná settum markmiðum. Á bak við árangur Gunnlaugs liggur þrotlaus vinna og á sama tíma er nauðsynlegt að vera auðmjúkur fyrir verkefninu. Frá fyrsta fundi okkar í lok síðasta árs fundum við að Gunnlaugur væri heilsteyptur og metnaðarfullur einstaklingur sem ætlaði sér langt enda kom það skýrt fram þegar hann varð fyrsti íslenski karlkyns kylfingurinn til stíga á stærsta svið golfsins fyrir stuttu. Við erum stolt af því að fá að fylgja honum á þessari spennandi vegferð sem hann er á,“ segir Róbert F. Michelsen, framkvæmdastjóri Michelsen 1909.

Gunnlaugur segir samstarfið hafa fallið vel að þeim gildum sem hann vill standa fyrir.

„Frá fyrsta spjalli fannst mér gildin okkar passa einstaklega vel saman. Það skiptir mig miklu máli að stoppa reglulega og fagna þeim stóru áföngum sem verða á ferlinum, því þeir eru aldrei sjálfsagðir. Hugmyndin að merkja þessa áfanga með úri sem verður hluti af sögu minni höfðar sterkt til mín og ég hlakka til að byggja þessa vegferð áfram með Michelsen.“

Gunnlaugur varð fyrr á þessu ári fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að tryggja sér þátttökurétt á U.S. Open, einu af fjórum risamótum atvinnugolfsins. Að sögn beggja aðila er samstarfið hugsað til langs tíma og mun þróast samhliða áframhaldandi vegferð Gunnlaugs í fremstu röð alþjóðlegs golfs.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ