GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Guðmundur Oddsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, er fallinn frá, 83 ára að aldri.

Afskipti Guðmundar af golfíþróttinni hófust áður en GKG var stofnaður árið 1974. Sem bæjarfulltrúi í Kópavogi barðist hann meðal annars fyrir byggingu golfvallar í Fossvogsdal. Þau áform gengu ekki eftir en í framhaldinu sameinuðust Golfklúbbur Kópavogs og Golfklúbbur Garðabæjar undir merkjum GKG.

Guðmundur lét strax til sín taka í starfi klúbbsins. Hann sat meðal annars í kjörnefnd og stjórn áður en hann var kosinn formaður. Hann gegndi formennsku á árunum 2006-2015 og var endurkjörinn árið 2018. Guðmundur lét af formennsku árið 2022.

Mikil uppbygging átti sér stað hjá GKG í formannstíð Guðmundar. Íþróttamiðstöð klúbbsins var reist og síðar stækkuð, golfhermum fjölgað í 22 og til varð ein stærsta TrackMan-golfhermaaðstaða heims. Þá býr GKG í dag að glæsilegum 27 holu golfvelli og öflugu barna-, unglinga- og afreksstarfi.

Skýr framtíðarsýn Guðmundar og mikill vilji til verka settu mark sitt á starfsemi og þróun GKG. Þótt hann hefði látið af formennsku hélt hann áfram að fylgjast vel með starfi klúbbsins, leit reglulega við og var óspar á skoðanir og góð ráð.

Guðmundur sat einnig í heiðursveitinganefnd Golfsambandsins.

Golfsamband Íslands þakkar Guðmundi fyrir ómetanlegt framlag hans til golfíþróttarinnar á Íslandi og vottar Stellu, Sigrúnu, Sunnu og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Minning Guðmundar mun lifa áfram í verkum hans og þeim sterka anda sem einkennir GKG.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ