GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, fimmtudaginn 30. júlí.

Keppt verður um tíu síðustu sætin í karlaflokki vegna mikillar skráningar í mótið. Verði kylfingar jafnir í tíunda sæti að loknum hring verður leikinn bráðabani um síðasta lausa sætið. Allir þeir sem skráðir voru í Íslandsmótið í golfi en komust ekki beint inn í mótið fengu boð í undankeppnina.

Þrjátíu og þrír kylfingar eru skráðir til leiks í undankeppnina og verður hart barist um lausu sætin. Þetta er í fjórða skiptið sem undankeppnin fer fram.

Hér má nálgast rástíma og stöðu mótsins.

Ekki verður haldin undankeppni í kvennaflokki þar sem ekki náðist sá lágmarksfjöldi (tíu) sem þarf til þess að undankeppni fari fram.

Þess í stað hefur verið útbúinn biðlisti, sem er raðað eftir forgjöf. Komi til forfalla fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á listanum og þeim boðin þátttaka.

Biðlistinn í kvennaflokki er eftirfarandi:

  1. Ninna Þórey Björnsdóttir
  2. María Björk Pálsdóttir
  3. Sara María Guðmundsdóttir
  4. María Kristín Elísdóttir
  5. María Högnadóttir
  6. Kristín María Valsdóttir
  7. Katla María Sigurbjörnsdóttir
  8. Elísabet Þóra Ólafsdóttir

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ