GSÍ fjölskyldan
Auglýsing

Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.

Í flokki 17-18 ára var ekki leikinn höggleikur áður en útsláttarkeppnin hófst. Keppendum var þess í stað raðað í sæti eftir stöðu þeirra á stigalista mótaraðarinnar í sumar. Sextán kylfingar hófu leik í útsláttarkeppninni.

Til úrslita léku Pamela Ósk Hjaltadóttir og Björk Hannesdóttir. Pamela Ósk vann úrslitaleikinn 6/4, og tryggði sér þar með Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.

Pamela Ósk var sjöunda í röðuninni. Hún vann Dagbjörtu Sísí Einarsdóttur 3/2 í 16 manna úrslitum og Ásdísi Rafnar Steingrímsdóttur 1/0 í átta manna úrslitum. Í undanúrslitum mætti hún Lilju Maren Jónsdóttur og vann annan jafnan leik, 1/0.

Björk var fimmta í röðuninni. Hún vann Ernu Steinu Eysteinsdóttur 2/1 í fyrstu umferð og Emblu Hrönn Hallsdóttur 1/0 í átta manna úrslitum. Undanúrslitaleikur Bjarkar og Bryndísar Evu Ágústsdóttur var afar jafn og réðust úrslitin ekki fyrr en á 16. holu, þar sem Björk tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.

Bryndís Eva varð í þriðja sæti eftir sigur gegn Lilju Maren á 15. holu í leiknum um bronsið.

Verðlaunasæti:

  1. Pamela Ósk Hjaltadóttir
  2. Björk Hannesdóttir
  3. Bryndís Eva Ágústsdóttir

Hér má sjá úrslit allra leikja

Skjáskipt keppnisbracket fyrir stúlkur 17–18 ára með keppendur og niðurstöður (rundur, paringar og sigrar/tap).

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ