Íslandsmót unglinga 2026 í holukeppni fór fram á Selfossi dagana 23.-25. júlí.
Í flokki 17-18 ára var ekki leikinn höggleikur áður en útsláttarkeppnin hófst. Keppendum var þess í stað raðað í sæti eftir stöðu þeirra á stigalista mótaraðarinnar í sumar. Keppnin hófst í 16 manna úrslitum.
Til úrslita léku Gunnar Þór Heimisson og Kristján Karl Guðjónsson. Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi, en Gunnar Þór hafði að lokum betur, 1/0, og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2026.
Gunnar Þór var annar í röðuninni. Hann vann Aron Leo Guðmundsson 3/2 í 16 manna úrslitum og Maron Björgvinsson 4/2 í átta manna úrslitum. Í undanúrslitum mætti hann Arnari Daða Svavarssyni og vann 4/3.
Kristján Karl var efstur í röðuninni og sat hjá í fyrstu umferð. Hann vann Patrek Mána Ævarsson 2/1 í átta manna úrslitum og lagði síðan Hafstein Thor Guðmundsson 3/2 í undanúrslitum.
Arnar Daði tryggði sér þriðja sætið með 3/2 sigri gegn Hafsteini Thor í leiknum um bronsið.
Verðlaunasæti:
- Gunnar Þór Heimisson
- Kristján Karl Guðjónsson
- Arnar Daði Svavarsson
Hér má sjá úrslit allra leikja






