Auglýsing

Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars s.l.  stóð Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir ráðstefnunni „Konur og íþróttir, forysta og framtíð.“

Umfjöllunarefni ráðstefnunnar var konur í forystuhlutverki í stjórnum, dómgæslu og þjálfun.

Rætt var um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim býðst, sem og hvernig og hvers vegna það er mikilvægt að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni. 

Á það við um þátttöku í stjórnum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi. 

Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, hélt fyrirlestur á ráðstefnunni – og er hægt að horfa á upptökuna hér fyrir neðan:

Konur í íþróttum – ÍSÍ_1_V1-0007 from ISI on Vimeo.

Nánari upplýsingar um viðburðinn á FacebookKonur & íþróttir – forysta og framtíð | Facebook

Dagskrá 

Setning ráðstefnunnar
Þórey Edda Elísdóttir, fyrsti varaforseti ÍSÍ. 

Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson félagsfræðingur

Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ

Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands

Pallborðsumræður

Að fóta sig í karllægum heimi
Bríet Bjarnadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari

Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum

Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á Ól í áhaldafimleikum

Að breyta leiknum
Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn

Hvað borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir handboltaþjálfari

Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari

Hagsmunasamtök kvenna í knattspyrnu (HKK)
Lára Hafliðadóttir situr í stjórn HKK

Hvað gerum við nú – stutt rafræn samantekt

Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ

ÍSÍ og UMFÍ hvetja öll kyn til að mæta og láta sig varða um málefnið!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ