Auglýsing

Íslensku lýðheilsuverðlaunin verða afhenti í annað sinn á þessu ári – en Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson stendur á bak við tilnefninguna ásamt heilbrigðisráðuneytinu, Embætti landlæknis, ÍSÍ og Geðhjálp.

Verðlaunin voru afhent í fyrsta sinn í fyrra.

Forseti Íslands hefur nú auglýst eftir tillögum frá almenningi um hver ætti að hljóta Íslensku lýðheilsuverðlaunin 2024 sem veitt verða á Bessastöðum í síðari hluta apríl. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings. 

Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum.  Annars vegar til einstaklings og hins vegar til samtaka, stofnunar eða fyrirtækis sem hafa látið gott af sér leiða á þessu sviði. Almenningur er hvattur til að senda inn tillögur að verðugum verðlaunahöfum ásamt rökstuðningi á vefsíðunni lydheilsuverdlaun.is, en fresturinn rennur út 1. apríl.

Þetta er í annað sinn sem óskað er eftir tillögum fyrir Íslensku lýðheilsuverðlaunin en þau voru afhent í fyrsta skipti vorið 2023. Þá hlaut Snorri Már Snorrason verðlaunin í einstaklingsflokki en í flokki starfsheilda varð Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands fyrir valinu. Hátt í 350 tillögur bárust frá almenningi.

Lýðheilsa er samheiti yfir bæði heilsuvernd og forvarnir. Lýðheilsustarf byggir á samvinnu um að bæta heilbrigði þjóðarinnar, líðan og lífsgæði í samfélaginu. Að Íslensku lýðheilsuverðlaununum standa heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis, Geðhjálp og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, auk embættis forseta Íslands. 

ÍSÍ hvetur almenning til að taka þátt og senda inn tilnefningar.  

Verðlaunum er ætlað að draga athygli að mikilsverðu framlagi á sviði lýðheilsu og auka með þeim hætti áhuga á bættri heilsu og líðan almennings.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ