Auglýsing

Fyrri undankeppninni í Landsmótinu í TrackMan golfhermum er lokið. Alls luku 153 keppendur leik. Síðari undankeppnin fer fram dagana 21. mars – 21. apríl þar sem að 24 konur og 48 karlar eru með keppnisrétt. Skor úr fyrri undankeppninni telur ekki í 2. umferð.

Í þessu móti er leikið á Korpúlfsstaðavelli – (Sjórinn/Áin) sem er par 72.

Ragnhildur Kristinsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2023, var á besta skorinu í kvennaflokki en hún lék á 64 höggum eða 8 höggum undir pari vallar en keppendur á 86 höggum eða betra skori komust áfram í 2. umferð. Ragnar Már Garðarsson var á besta skorinu í karlaflokki en hann lék á 63 höggum eða 9 höggum undir pari. Þeir keppendur sem léku á pari vallar, 72 höggum, komust því 51 keppandi áfram í 2. umferð.

Úrslit í kvennaflokki eru hér:

Úrslit í karlaflokki eru hér:

Úrslitakeppnin fer fram föstudaginn 26. apríl í íþróttamiðstöð GKG og hefst keppni kl. 15. Leiknar eru 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum. 

Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komast í úrslitakeppnina, Landsmótið, sem haldið verður 26. apríl 2024 í Íþróttamiðstöð GKG. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram gilda seinni 9, síðan seinustu 6, loks seinustu 3 og svo 1. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.“

Landsmótið í golfhermum hefur notið vinsælda hjá kylfingum víðsvegar um landið og framundan er spennandi keppni. Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki. Tvær undankeppnir fara fram áður en leikið verður til úrslita um Landsmeistaratitilinn í lok apríl.

Hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika að pútta. Stillingar mótsins tryggja að vallaraðstæður séu eins hvar sem leikið er. 

Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir eru stilltar á mestu mýkt en flatir eru harðar með miðlungs hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra. 

Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki og bláum í kvennaflokki. 

1. sæti: 130.000 kr. 

2. sæti: 50.000 kr. 

3. sæti: 30.000 kr. 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ