Jussi Pitkänen, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið sex kylfinga sem keppa fyrir Íslands hönd í Evrópukeppni stúlknalandsliða í Finnlandi um miðjan júlí. Keppnin fer fram á St. Laurence Golf Club dagana 11.-15. júlí.
Liðið er þannig skipað:
Amanda Guðrún Bjarnadóttir (GHD)
Andrea Ýr Ásmundsdóttir (GA)
Andrea Bergsdóttir (HILLS GK, Svíþjóð)
Hulda Clara Gestsdóttir (GKG)
Kinga Korpak (GS)
Zuzanna Korpak (GS)
Fararstjóri: Þorbjörg Jóhanna Gunnarsdóttir.
Liðsstjóri: Jussi Pitkänen.