Íslenski atvinnukylfingurinn Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, náði frábærum árangri á Sand Valley Spring Series Final mótinu í Póllandi um helgina. Sigurður endaði jafn í 9. sæti mótsins á sextán höggum undir pari. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.
Fyrsta hringinn lék Sigurður á þremur höggum undir pari, en það var annar hringurinn sem kom honum í baráttu um sigurinn í mótinu. Þar lék hann á tíu höggum undir pari eftir frábæra spilamennsku. Hann hóf hringinn af krafti, en hann fékk þrjá fugla og örn á fyrstu sex holum hringsins. Á sautjándu holunni bætti hann einum fugli við og lék seinni níu holurnar því á 30 höggum, sex undir pari.
Eftir tvö pör á fyrstu tveimur holum fyrri níu fóru fuglarnir að hrannast inn á ný. Þrír fuglar í röð duttu á holum þrjú, fjögur og fimm, og Sigurður kominn níu undir par eftir fjórtán holur. Fugl á áttundu holunni kom Sigurði tíu undir og par á síðustu holu dagsins fullkomnaði þennan magnaða hring.

Sigurður var jafn í fjórða sætinu fyrir lokahringinn, sem hann lék á 70 höggum, þremur undir pari, og endaði mótið jafn í níunda sætinu.
Sigurður var eini íslenski kylfingurinn sem náði í gegnum niðurskurð mótsins, en stór hópur íslenskra kylfinga hefur leikið í Póllandi undanfarnar vikur. Mótið var það þriðja sem hópurinn lék á Sand Valley svæðinu, en Sigurður lék mjög gott golf í ferðinni.

Í fyrsta móti hópsins í Póllandi voru þeir Logi Sigurðsson og Sigurður Arnar þeir einu sem komust í gegnum niðurskurð. Báðir léku þeir gott golf í mótinu og enduðu jafnir í áttunda sætinu.
Í öðru mótinu enduðu Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson báðir á meðal efstu tíu kylfinga mótsins. Hlynur endaði einn í sjöunda sæti en Dagbjartur var höggi á eftir honum, jafn í áttunda. Daníel Ísak Steinarsson náði einnig í gegnum niðurskurð og endaði jafn í 31. sæti.
Lokamótið markar endapunkt á þátttöku íslenska hópsins í Póllandi, en næsta mót Nordic Golf League hefst þann 29. apríl í Svíþjóð.
