Sand Valley Masters mótinu í Póllandi lauk í dag og voru þrír íslenskir kylfingar í toppbaráttu fyrir lokahringinn. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu.
Bretinn Eric McIntosh stóð uppi sem sigurvegari mótsins á fimmtán höggum undir pari, eftir bráðabana við hinn sænska Oliver Gillberg.
Bestum árangri íslensku kylfinganna náði Hlynur Bergsson sem endaði í 7. sæti á átta höggum undir pari. Hlynur lék mjög stöðugt golf alla dagana og lék hringi mótsins á 68-68-66.

Dagbjartur Sigurbrandsson endaði jafn í 8. sæti mótsins á sjö höggum undir pari eftir að hafa leikið á 69-69-65. Hann lék sinn besta hring í dag og kom í hús á 65 höggum, fimm undir pari, og fór upp um sjö sæti á milli daga.

Daníel Ísak Steinarsson var í toppbaráttu fyrir lokahringinn en endaði í 31. sæti á tveimur undir pari. Daníel lék hringina á 67-69-72 og tapaði einungis fimm höggum í öllu mótinu.

Flottur árangur hjá íslensku kylfingunum sem leika þriðja og síðasta mót sitt á Sand Valley svæðinu um helgina.
Hér að neðan má sjá skor allra íslensku kylfinganna (að tveimur hringjum loknum)
| Sæti | Skor | Kylfingur | Klúbbur |
| 7 | 68 – 68 – 66 (-8) | Hlynur Bergsson | GKG |
| T8 | 69 – 69 – 65 (-7) | Dagbjartur Sigurbrandsson | GR |
| T31 | 67 – 69 -72 (-2) | Daníel Ísak Steinarsson | GK |
| MC | 74 – 68 (+2) | Logi Sigurðsson | GS |
| MC | 72 – 76 (+8) | Sigurður Arnar Garðarsson | GKG |
| MC | 71 – 79 (+10) | Aron Snær Júlíusson | GKG |
| MC | 75 – 76 (+11) | Skúli Gunnar Ágústsson | GKG |
