Nú er hægt að leika fimm íslenska golfvelli í golfhermum TrackMan: Hvaleyrarvöll í Hafnarfirði, Korpúlfsstaða- og Grafarholtsvöll í Reykjavík, Jaðarsvöll á Akureyri og Leirdalsvöll hjá GKG. Tæknilausnir sem þessar opna á nýjar leiðir til að kynna íslenskt golf fyrir kylfingum um allan heim.
Að íslenskir golfvellir séu nú aðgengilegir í TrackMan þýðir að milljónir kylfinga geta prófað þá hvar sem er í heiminum. Það kostar 5 milljónir kr. að tölvugera nýjan golfvöll í TrackMan. Það má því færa rök fyrir því að hér sé um öfluga og hagkvæma markaðssetningu að ræða sem getur aukið áhuga á Íslandi sem golfáfangastað og haft jákvæð áhrif á ferðaþjónustu og tekjur í greininni.
Árið 2025 léku rúmlega 14.000 erlendir kylfingar þessa golfvelli í golfhermum einhverstaðar í heiminum og ekki ólíklegt að einhverjir kylfingar hafi svo mætt til landsins og leikið vellina eða sett þá á óskalista í kjölfarið. Flestir hringir voru skráðir á Hvaleyrarvöll og Korpuna.
Ísland er þegar orðið áfangastaður fyrir erlenda kylfinga og með tilkomu TrackMan færist upplifunin út fyrir landsteinana og inn í golfherma. Erlendar rannsóknir sýna mikla aukningu í golfi sem fer fram utan hefðbundinna golfvalla (golfhermar, æfingasvæði, mini-golf, ævintýragolfvellir) sem undirstrikar mikilvægi þess að vera sýnileg á þessum vettvangi.
